Leita í fréttum mbl.is

Uppreisn heimilistækjana

Jæja......er loksins orðinn einn á heimilinu með DK

Fyrsti dagurinn okkar saman

Allt hefur gengið að óskum enn sem komið er. Drengurinn kátur, étur vel og sefur

Það er bara eitt atriði

Heimilistækin hafa gert uppreisn gegn mér!

Fyrst setti ég í þvottavél, ekkert mál (enda áður gert).....nei,nei,allt á floti eftir klst!

Eitthvað að henni skyndilega og viðgerðarmaður pantaður og kemur á mánudaginn

8 ára vél í umsjón Betu.....aldrei neitt vesen.
1 dagur í umsjón SIR........Biluð!

Þetta kom mér ekkert á óvart

En það sem kom mér hins vegar verulega á óvart og særði mig pínu var uppreisn af hálfu örbylgjuofnsins

Sko, hingað til hefur hann verið minn helsti bandamaður. Ég skaffa honum vel að vinnu og við höfum gagnkvæma virðingu fyrir hvor öðrum. Við leikum okkur þannig að ég þarf að ná að slökkva á honum 1 sek fyrir niðurtalninguna eins og sprengjusérfræðingur. Ef það tekst ekki þá pípir hann á mig. Good times.

Nei,nei.....hann bara slökkti á sér helvítið

Steindauður

Samt ekki alvarlegra en svo að honum sló út......en SAMT!

Þetta er klárlega stuðningsyfirlýsing við þvottavélina!

Ég tek þessu allavega þannig

Ég sem hélt að ég og Örri værum vinir.

Ekki lengur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað er að gerast???

betz (IP-tala skráð) 2.2.2012 kl. 14:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.2.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband