Leita í fréttum mbl.is

Gnarrenburg

Myndi kjósa Jón Gnarr aftur ef það verður í boði

Sá hann í viðtali við fokkin Sigmar í Kastljósinu. Hvernig er hægt að vera svona leiðinlegur eins og Sigmar?

Hann bara gat ekki hætt að kenna Jóni um veðurfarið á Íslandi.

Eitthvað að gagnrýna mokstur á götum útaf snjónum.

Halló, það kom einfaldlega rosalega mikið af snjó og svo með brjáluðu veðri í ofanálag og borgin hafði ekki undan. Snjóþyngsti Desember síðan mælingar hófust.

Hvað átti Jón að gera!

Held líka að Gnarrinn hafi verið að hugsa.....,,uuuu ertu ekki að grínast eða" þegar Sigmar tönglaðist á þessu aftur og aftur.

Það virðist vera svo að Sigmar fái bónusgreiðslur ef hann fær viðmælandann til að segjast hafa gert mistök. Allavega virðist það vera honum mjög mikilvægt.

Þó að maður sé ekkert að taka sérstaklega mikið eftir hvort Besti flokkurinn sé að gera gott mót eða ekki þá eru þeir allavega ekki með allt niður um sig.

Á meðan þeir eru ekki að skíta á sig OG tala eðlilega við fólk og fjölmiðla og ekki með svona pólitíkusarsvör við öllu þá fá þau mitt atvkæði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Það vita allir að það snjóaði Sigursteinn. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem snjóar í Reykjavík þótt það hafi snjóað hressilega á "reykvískan mælikvarða". Göturnar voru ekki ruddar (mínus svokallaðar stofnbrautir) - þ.e. ekki gerð til þess tilraun - heldur voru gangstéttir heldur ekki ruddar (þ.m.t. í nágrenni Grundar) auk þess sem því var því sleppt að bæði sanda og salta sem er m.a. talin góð og gild aðferð til að draga úr snjó og hálku í viðurkenndum smábæjum á norðvestanverðu landinu sem og annars staðar þar sem starfsfólk ræður við smá snjó.

----

Það þarf að moka snjó burtu þegar hann kemur og ekki nóg að vonast eftir hláku þótt hún komi fyrr eða síðar. Við borgum ekki veðurguðinum útsvarið okkar.

Guðmundur St Ragnarsson, 12.1.2012 kl. 20:14

2 Smámynd: Sigursteinn Ingvar Rúnarsson

Ha? það var verið að moka út um allt upp í Grafarholti allavega. Ég man einmitt hvað ég var ánægður með að geta komist allt á litla bílnum mínum :)

Svo sá ég t.d. bara síðast fyrr í dag litlar gröfur að moka gangstéttir, bæði hér í holtinu og þar sem ég vinn niðrí Mörkinni.

Ég veit ekki, finnst eins og ílla hafi verið vegið að Jóni með þetta. Ok, ef eitthvað vantaði upp á að moka, þá verður fólk bara að átta sig á því að stundum er Ísland bara svona. Í þetta sinn snjóaði mikið PLÚS vont veður.

P.s. þá fannst mér þetta bara kósí. Var mikið að vonast eftir því að rafmagnið myndi fara alveg, heilt kvöld eða svo. Yrði eins og í gamla daga. Kerti og spil.

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson, 12.1.2012 kl. 23:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband