2.12.2011 | 20:23
lítill
Ég er með eyrnabólgu eins og litlu börnin
Það er æðislegt
Læknirinn var bara ,,WTF! Af hverju í fjandanum ert ÞÚ með eyrnabólgu?"
Ég er með mínar meiningar og kenningar varðandi það skal ég segja ykkur
Þannig er nefnilega mál með vexti að ég og Beta fórum síðasta vetur í labbitúr og ég kaffærði henni í snjó. Svo leyfði ég henni að simpattí-kaffæra mér líka því hún gat það ekki sjálf.
Ég fékk snjó inn í vinstra eyrað og var með verk lengi vel.
Svo er þetta allt í einu núna að blossa upp. Verkur og læti.
Læknirinn hélt áfram að hneykslast á mér
,,ertu kvefaður?"
,,nei"
,,mjög undarlegt, ertu með hita?"
,,nei"
,,mjög undarlegt, ertu með pínu hálsbólgu?"
,,nei"
,,þetta er allt saman mjög undarlegt"
Sebastian fannst þetta mjög fyndið. Að pabbi skuli vera með eyrnabólgu eins og litlu börnin.
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
já...hann hafði sem sagt bælt eyrnabólguna í FYRRA...og nú með fyrsta snjónum blossaði eyrnabólgan upp!
Grunar frekar að eitthvað suddalega viðbjóðslegt gítarsóló sem þú varst að hlusta á hafi ollið þessu
betz (IP-tala skráð) 2.12.2011 kl. 22:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.