24.1.2011 | 09:52
Versló gæji
Er kominn með bullandi hálsbólgu og nefrennsli. Sofnaði ekki fyrr en kl 4:30 sökum vesenis og pirrings. Æðislegt.
Allavega.
Í gærkvöldi var fjör. Ég var statisti í Pressa 2 og lék gæja í eftirpartíi.
Plottið var sem sagt að Krummi, leikinn af Gísla Erni Hollywood stjörnu, er eini útrásarvíkingurinn sem náðist ekki og hann er aftur dottinn í djammgírinn.
Hann safnar saman gömlu versló félögunum og fer á djammið. Þetta er sem sagt eftirpartí eftir eitt slíkt djamm þar sem einkabílstjóri hans hefur safnað saman fullt af bimbó gellum í húsið hans og svo við verslógæjarnir.
Svo var vinur hans, leikinn af Jóhannesi Hauki Hellisbúa, með honum í þessu. Og þeir eitthvað að kela við kéllingar.
Skari skrípó leikstýrði og var hress og mun þægilegri en allir aðrir sem ég hef unnið með. Ótrúlega genuin gæji.
Þetta var stuð.
Þetta var tekið upp í húsi sem Jón Ásgeir átti, seldi mömmu sinni og núna leigir hún einhverjum svaka lögfræðingi húsið. Frekar flott allt þarna inni.
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.