Leita í fréttum mbl.is

Sækó vanafastur

Var að pæla í því, ég stoppa alltaf örbylgjuofninn 1 til 2 sek áður en hann klárar að telja niður. Ég geri það því hljóðið pirrar mig. Ekki af því að mér finnst gaman að ímynda mér að ég vinni sem sprengjusérfræðingur og sé að stöðva yfirvofandi sprengingu rétt í tæka tíð.

Nei.

Fátt er meira óþolandi en þegar einhver setur í örbylgjuofninn og bíður alla leið. Svo ég tali nú ekki um dauðasyndina að fá áminningar píp.

Þetta píp getur gert mig brjálaðan. Líka pípið í vekjaraklukku.

Fleiri sækó vanar sem ég geri ósjálfrátt:

Ég set mjólkina í ískápinn í réttri röð þannig að sú sem rennur fyrst út er fremst. Það er nú eiginlega bara basic. Nánast skynsamlegt.

Ég sný klósettpappírnum alltaf eins þar sem hann hangir. Þannig að hann flæði niður að framan.

Fer alltaf fyrst í hægri skálm á buxum. Hljómar skringilega, en ef þú pælir í því þá gerir þú það örugglega líka. Kannski ekki örvhentir.

Dauðhreinsa tannburstann minn eftir notkun. Nánast. Ég má allavega ekki sjá neitt á honum. Finnst viðbjóðsleg sú tilhugsun að gera það ekki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég einfaldlega varð að tjekka á þessu með buxurnar svo ég vippaði mér úr þeim til þess eins að sjá í hvora skálmina ég fer fyrst. Prufaði síðan að fara fyrst í "röngu" skálmina og það var vægast sagt óþægileg tilfinning! Ég fer alltaf í vinstri skálmina fyrst, en er samt rétthentur. Þetta gæti samt stafað af því að ég er örvfættari en John Arne Riise!

Síðan er ég alveg sammála þér með fjandans pípið í örbylgjuofninum, það kemur alveg fyrir að maður rífi upp hurðina á ofninum áður en þetta leiðindapíp kemur...

GHH (IP-tala skráð) 17.11.2010 kl. 18:32

2 Smámynd: Sigursteinn Ingvar Rúnarsson

Ánægður með þig. Já Beta var eitthvað að segja að það er venjan að rétthent fólk fari fyrst í vinstri skálmina. Eitthvað með hægra vs vinstra heilasvæði.

Ég fæ einmitt svona ranga tilfinningu þegar ég prófa hitt.

Gott að vita að ég sé ekki eini lunatikkinn í gkg.

Ætli allir aðrir séu ekki bara sækó og maður sjálfur bara heill. Spurning um að byrja kalla sig Wonko The Sane (http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_minor_The_Hitchhiker's_Guide_to_the_Galaxy_characters)

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson, 17.11.2010 kl. 19:07

3 identicon

god... ég er sammála þér með mjólkina, klósettpappírinn og tannburstann - ég meina, þetta er ekkert sækó, þetta er bara augljóst mál ;)

verð að prófa með buxurnar einhverntíman ;)

Lilja (IP-tala skráð) 18.11.2010 kl. 08:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband