15.11.2010 | 07:17
Bíórýni: GNARR
Fórum á Gnarr. Hún er góð. Kom mér á óvart hve hún missir ekkert dampinn. Ef maður fílar Jón Gnarr, Fóstbræður og slíkt þá er þetta mynd fyrir þig.
Við tókum sérstaklega eftir fólkinu sem var á myndinni. Ekki þetta normaldreifða crowd sem maður sér. Það var eitthvað öðruvísi dreifingin. Fólkið var aðeins undarlegra en vanalega. Veit ekki af hverju.
Stórgóð mynd og við hlógum mjög mikið. Minnti mig á þegar ég fór í bíó með Pétri á Liar Liar. Þegar við hlógum alla myndina en svo bara meira í fyndnu atriðunum.
Þá meina ég að við vorum með steddí rythma af mildum hlátri allan tímann en svo sprakk háværri hlátur út í fyndnu atriðunum.
Mæli eindregið með þessari mynd. Í raun fær hún 4,89 af 5. Stjörnuregn.
Sá úr Tron með Jeff Bridges. Pottþétt mynd sem maður fer á í bíó. Frágengið.
Sá úr Harry Potter. Fer líka pottþétt á hana. Hef gaman af stórmyndum þótt Potterinn sé nú soldið útvatnaður. Ég hef reyndar bara einu sinni sofnað í bíó og það var á Potter mynd. Vona að þessi verði betri en það.
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.