10.11.2010 | 07:35
Leiðinlegasti draumur í heimi
Ég dreymdi sennilega leiðinlegasta draum í heimi í nótt. Sá sem stjórnar draumunum hefur bara hugsað með sér ,,Ok, hver er næstur. Sigursteinn, hmmmm, hann lifir of áhugaverðu lífi, skulum aðeins tóna þetta niður hjá honum".
Ég sat og beið eftir lausu borði á Argentínu. Mjög lengi. Ásamt manni sem er með þeim óáhugaverðari sem ég hef kynnst. Hef ekki séð hann né spjallað við örugglega í hartnær fjögur ár eða svo. Nafn hans mun ekki verða opinberað hér.
Svo fengum við borð, en þá var svo mikið að gera hjá þeim að við fengum borð sem var í raun borð upp í mötuneyti Íslandsbanka. Og þar var fólk að vinna.
Ég brást íllur við og bað um nýtt borð. Sem við fengum á endanum. Það var fyrir innan barinn. Þjónar voru alltaf að rekast í mig.
Svo ætluðum við að panta og hann sagðist vilja tvo forrétti og engan aðalrétt!
Þá stóð ég upp og fór og vaknaði í kjölfarið.
Ég held að ég hafi einfaldlega vakið sjálfan mig út af leiðindum.
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.