4.9.2010 | 09:29
Aulinn ég
Fórum með Sebas í fjögur bíó. Fórum á "Aulinn ég,, á ensku og í þrívídd að sjálfsögðu.
Hún er stórgóð barnamynd! Húmor fyrir börnin og fullorðna.
Við, ásamt fimm öðrum sem voru í salnum, skemmtum okkur eins og konungar. Með þrívíddargleraugu, popp og kók.
Sebas var með uþb 7 sessur. Staflaðar upp í loft.
Steve Carell, Jason Segel og Russel Brand eru mjög fínir í sínum talhlutverkum. Var búinn að sjá trailer á íslensku með Pétri Jóhanni og fílaði engan vegin. Sá að þetta var samt fyndin mynd. En það er nauðsynlegt að sjá þetta á upprunalega málinu. Eins og nánast alltaf.
Þrívíddinn var skemmtileg. Líka þegar myndin var búin. Þá byrjuðu gulu kallarnir að reyna að ná til áhorfenda í gegnum tjaldið. Sebas fílaði það.
Fjórar stjörnur af fimm.
Tekur sér sæti við hliðin á The Incredibles, Shrek 1, Madagascar, Monster Inc. og öllum þessum góðu Pixar myndum.
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.