Leita í fréttum mbl.is

Tequila Sunrise

Kvöldið byrjaði í sakleysi sínu á pitsu og góðum HM leik með strákunum. Endaði svo með hausinn hangandi á fötu með ælu í. Sofandi.

Hvað gerðist í millitíðinni?

Ég var rólegur með baileys í einni og pitsu í hinni yfir leiknum.

Fékk svo áríðandi skilaboð frá stjórn partínefndar gkg manna um að drulla mér á staðinn. Lokahóf gkg var þá í hæstum hæðum og íslandsmeistarinn ekki mættur.

Ég og Beta fórum því upp eftir og hófst þá kvöldið fyrir alvöru.

Til að gera langa sögu stutta þá dánaði ég heilum lítra af Baileys þar ásamt um 300ml af dry Tekíla.

Bailísinn var drukkinn á sirka 5 tímum en þessir 300ml voru dánaðir í einum sopa!

Tók um 10 sekúndur eða svo.

Það kikkaði svo inn eftir rúmlega klukkutíma. Þá var farið heim. Og ælt.

Êg hef aldrei verið svona þunnur. Aldrei!

Ég var svo vakinn kl 11, rifinn upp og skellt í bíl. Keyrðum í einn og hálfan tíma í afmæli í sumarbústað einhverstaðar út í sveit. Um það bil það erfiðasta sem ég hef gert.

Núna er komið kvöld og ég er loksins búinn að útskrifast úr mega þynnku yfir í normal þynnku.

Þá er bara eitt eftir. Skinkuþyta!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vona að Beta hafi notað tækifærið og verið ofurhress í dag, látið tekílakónginn finna aðeins fyrir því;)

Sigga siss (IP-tala skráð) 11.7.2010 kl. 23:51

2 identicon

Hehe...það var ekkert gefið eftir :)

Beta (IP-tala skráð) 12.7.2010 kl. 14:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband