Leita í fréttum mbl.is

LU samsærið

Kenning mín um LU samsærið hljóp soldið í kekki í kvöld. Ég fór á rúntinn með Betu og við gerðum viðamikla könnun á þessu fyrirbæri sem hefur plagað hugsanir mínar í nokkur ár.

Fyrir þá sem ekki eru kenningunni kunnir snýst hún um að ég hef tekið eftir því að bílar með númerplötuna LU og svo einhverja random tölustafi eru í yfirgnæfandi meirihluti í borginni.

Við skönnuðum sem sagt borgina, ég leitandi að LU plötum en Beta ákvað að leita að UN númeraplötum.

Skemmst er frá því að segja að hún fann þrjár með skömmu millibili!!! en ég bara eina LU (og meira að segja tók ég ekki eftir henni heldur sá Beta hana bara).

Svo sáum við fjórar MJ plötur og þrjár ZZ plötur (þetta er ekki hulinn Michael Jackson og ZZ-top brandari).

Kenning mín um LU samsærið er fallin og skýringin augljóslega sú að ef þú einsetur þér að taka eftir hlutum þá tekuru frekar eftir þeim. Kalt mat.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband