13.4.2010 | 15:53
Fúli
Varð fúll eftir morgunæfingu því ég tapaði stórt. Hef sjaldan orðið jafn pirraður yfir einhverju jafn smávægilegu. Reyndi að æfa vippin eftir æfinguna en dugði bara í hálftíma sökum pirrings.
Þar sem ég var svona pirraður var ekkert annað að gera en að drífa sig í ræktina og taka reiðipúl.
Ég ákvað að hlaupa eins hratt og ég gat(innan skynsamlegra marka) og reyndi að bæta 5km metið. Hljóp á 10 og tók 12 og 15 spretti annað slagið. Ég tek yfirleitt spretti þegar flottu kaflarnir í hörðu lögunum koma.
Ég bætti metið úr 29:25 í 28:55 sem ég tel bara nokkuð gott. Ég sé að ég gæti hlaupið þetta hraðar en þá þarf ég að vinna aðeins meira á bumbunni fyrst.
Tók svo pottinn eftir ræktina og tveggja tíma session klárt.
Svo er aftur golfæfing í kvöld.
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
5 km á 28:55! Flott bæting Ice Champion!
Það þýðir ekkert að pirra sig þó maður tapi! Keppandi við mig, Simma og Guðjón Henning. Allavega enginn unninn leikur þar ;)
Ace (IP-tala skráð) 14.4.2010 kl. 11:18
takk
það hefði ekki skipt máli þó Tiger, Phil og AK hefði keppt við mig. Ég hefði samt orðið pirraður. Kannski aðeins minna samt.....
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson, 14.4.2010 kl. 11:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.