12.4.2010 | 23:34
Varúð! golf færsla
Fór á Hellu í dag og spilaði 18 holur í frábæru veðri. Lítill vindur og ég aðeins á peysunni.
Ég hitaði ekkert upp og það var klárt mál að ég var soldið stirður í upphafi, bæði bókstaflega og svo bara svona útaf þetta er fyrsti 18 holu hringurinn minn í sumar.
Ég fór á +6 fyrri níu og pari seinni níu. Þannig að +6 í heildina og níu pör í röð frá tíundu braut og til enda.
1. par 4. Fullkomið upphafshögg á miðja braut. Pw inná grín og 4 mtr pútt eftir sem ég tvípúttaði. Par
2. par 3. Flott 9 járn rétt yfir grín. Þar sem ég er að vinna í vippunum þá heppnaðist það ekki og ég klikkaði á púttinu. Skolli.
3. par 5. Fullkomið upphafshögg. Ýtti blendingi út til hægri í höggi tvö en samt ekkert vesen. Þriðja högg meter of stutt. Vipp og pútt. Par.
4. par 3. Togaði aðeins fyrsta höggið til vinstri. Vippið aðeins of langt og náði ekki púttinu. Skolli.
5. par 5. Flott upphafshögg í hægri kant brautar aðeins lengra en 200mtr hæll. Tók svo léttan blending áfram til að stilla upp en var soldið feitt og stutt. Wedge höggið varð svo of stutt því enn var ég ekki að átta mig á því að það rúllar ekkert, snarstoppar bara í bleytunni. Vippaði of langt og meikaði ekki púttið. aulaSkolli.
6. par 4. Fyrsta lélega upphafshögg dagsins. Ég var of bráður með niðursveiflu og tók einn ormaskelfir og þurfti að taka víti. Þriðja höggið með pw en endaði vinstra megin á gríni og fáránlega mikið halla pútt niður í móti eftir. Þrípúttaði. Tvöfaldur skolli.
7. par 4. Örugga leiðin valin hér og vel til vinstri á þrettándu braut. Flott innáhögg og öruggt tvípútt. Par.
8. par 3. Högg dagsins hingað til. Fallegt áttujárn tvo metra við hlið holu. Vippaði og einpúttaði. Par.
9. par 4. Annað fínt upphafshögg. Feitt innáhögg of stutt. Vippið lélegt og náði ekki púttinu. Skolli.
Sex yfir pari í hálfleik. Tók svo níu pör í röð.
10. par 4. Villt upphafshögg til hægri. Rétt fyrir framan ellefta skiltið. Flott vipp en rétt missti fuglinn. par.
11. par 3. Fínt 54° högg rétt fyrir utan grín. Fínt vipp og tap-in fyrir pari. Par.
12. par 4. Villt upphafshögg til hægri. Skipti engu máli því það er alveg jafn gott að koma inn á grínið frá hægri. Feitt innáhögg of stutt. Vippið aðeins of langt en náði púttinu. Par.
13. par 3. Flott járnahögg. Vippið aðeins of langt en flott pútt. Par.
14. par 4. Frábært upphafshögg. Fínt innáhögg. Of langt vipp. Flott pútt. Par.
15. par 5. Mótvindur og endaði í hólunum. Feitt blendingarhögg og átti 140mtr eftir. Fullkomin sexa pínu stutt. Vippaði of langt. Flott pútt. Par.
16. par 4. Fullkomið upphafshögg. 60° högg aðeins of stutt. Of langt vipp. Frábært pútt. Par.
17. par 4. Púllaði upphafshöggið aðeins til vinstri sem er bara betra því þá er grínið opnara. 70mtr eftir og 54° þrem mtr of langt. Mjög erfitt fuglapútt niður í móti í extreme halla. Auðvelt par.
18. par 4. Högg dagsins. Ásinn smókin heitur. Nelgdur áfram. léttur 60° of langur. Vissjus niðrímóti pútt með exreme broti. Of langt en flott tilbaka pútt fyrir pari. Par.
Hnotskurn:
Ásinn mjög góður.
Járnin mjög góð.
Innáhögg ryðguð og þarfnast meiri touch æfingar.
Vippin eru algjörlega off því ég er að vinna í miklum breytingum þar. Vantar meiri æfingu til að finna rétta touchið þar.
Púttin góð, þessi grín náttla bara soldið röff en fín 30 pútt.
Rútínan góð og hausinn í lagi.
Mjög sáttur við daginn í dag!
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.