9.4.2010 | 11:12
Malt
Ég lá andvaka frá 00:00 til 02:00 og hlustaði á nokkrar breiðskífur í Ipoddnum með nýju Sennheiser heyrnatólin mín.
Byrjaði í A-inu og fór í Jagged little pill með Alanis. Hún er ágæt.
Fór svo í B-ið og hlustaði á ,,í sex skrefa fjarlægð frá paradís" með bubba. Tregablandnir textar segi ég og skrifa. Mjög áhrifaríkt og falleg lög inn á milli (en hallærisleg þess inn á milli).
Nennti ekki í C-ið og hélt mig í B-inu og tók Beirut skífuna ,,the flying club cup". Hún er flott. Franskt yfirbragð og fallega melónkólískt stöff.
Náði svo slitróttum svefni frá 2-6 þar sem ég þurfti þrisvar að vakna og róa Sebas niður sem var eitthvað kvektur.
Klukkan 6 vildi hann svo vakna (nýtt met hjá honum). Hófst ég þá handa við að snúsa hann niður sem tók klukkutíma. Þá var fólkið í húsinu vaknað og ég náði ekkert að sofna eftir það.
Ég vakti svo pungsa klukkan 8:16 og sagði honum að fara inn til stelpnanna og vekja þær. Hann hljóp ferskur og útsofinn sem blá þruma eftir ganginum á meðan ég dró lappirnar eftir mér sem uppvakningur.
Útfrá þessu fékk ég mér malt til að hressa mig við. Og er enn ekki farinn aftur að sofa. Helvítis maltið svínvirkar.
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.