Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

slebbbbb

Voðalega fannst mér þessi spyrlar í forsetaumræðunum lélegir. Þau voru að reyna að vera voða hörð en það kom út eins og þau væru að leggja Ólaf í einelti og að sleikja Þóru upp.

Það er svo fyndið að maður hefur ákveðna ímynd af Ólafi, svona mumblandi og tuldrandi gaur sem segir fátt. En svo loksins þegar hann tekur til máls þá er hann hárbeittur og svarar ákveðið fyrir sig. Flottur.

Ég fíla samt mun betur að fá Þóru í embættið. Einfaldlega útaf því að maður vill fá eitthvað ferskt, skemmtilegt og nýtt í gang. Kominn með leið á gömlum köllum.

Hins vegar............þá get ég ekki kosið hana ef hún vill í ESB

Þá kýs ég Ólaf. Svo er fínt að hafa Óla sem nokkurskonar grýlu fyrir Jóhönnu og Steingrím.

Erfitt val


hringur

vaknaði kl 6:50 og fór 18 holur

Tíðindalítill hringur á +7

8 skollar og einn fugl, rest par

Lenti aldrei í veseni. Þessir skollar voru bara útaf vippum sem ekki fóru nógu nálægt og púttum sem klúðruðust sökum lélegra grína

eða kannski ekki lélegra grína, þau voru ágæt. En það er þetta ósamræmi á hraða grínanna sem drepur. Á einni holunni rúllar kúlan sem elding en á næstu ekki neitt! Óþolandi að geta ekki stólað á svipaðan hraða.

Örugglega um 5 misst högg útaf þessu

En annars þá var þetta ógéðslega gaman. Rugl veður og almenn stemming


ágætt stöff


nkl


dagur

Tókum dallinn út í Eyjar og fórum í skírn. Hann skírðist Þór. Sonur systur minnar.

Góð veisla og samverustund

Tókum dallinn svo aftur heim

Gaurarnir sváfu alla leiðina. Brill

Svo voru pulsur grillaðar og Hljómskáli áhorfður


Steggjun

Steggjuðum Alfreð í dag. Byrjaði kl 8:30 með morgunmati. Svo klipping(hanakambur) og strípur. Vax (rifið hægt af), kjóll allan daginn, gervilimur, grillað á Klambratúni, rúgbí, heimsóttum FM957 og Heiðar Austman tók viðtal í beinni, lasertag, go-kart, kolaport í sprell, sund, matur, fyllerí.

Djöfulli góður dagur til að gera allt þetta.

Brilliant veður og góður félagsskapur


pow

Á frí í allan dag og er farinn að gera eitthvað skemmtilegt!

Má ekki segja hvað það er


Pæling dagsins

hafið þið pælt í því að það eru eiginlega eingöngu skoruð stórglæsileg mörk eða algjör klaufa mistakamörk í kvennafótbolta!

Annað hvort efst í hornið og óverjandi eða þá að varnarmenn og/eða markmenn að gera einhver fáránleg klaufamistök

hmmmmmmm


Sumar

Fórum í bústað, svona rétt til að tékka hvort hann væri þarna ennþá

Hentum steinum í ánna og steinarnir gerðu uppreisn og hentu sér á Sebastian

Hann er ílla marinn á ökklanum

Hann sem sagt tók upp of stóran stein, datt aftur fyrir sig og missti steininn ofan á ökklann sem lá akkurat ofan á öðrum stein.

Great.

Hann var bókstaflega á milli steins og sleggju

Hef sjaldan heyrt hann emja jafn mikið. Greyið

Hann er samt ágætur núna.

Haltrar en hann harkar þetta af sér.

Þetta fylgir því að vera strákur og gera stráka hluti

Svo flugum við flugdreka. Tvíbanda kvikindi sem var rosalegur. Géðveikt stuð.

Sumarið svo sannarlega komið


sumarbústaður

Jæja, þá er það sumarbústaður. Án þess að gista. Ætlum að rúnta upp í sumarbústað og henda steinum í ánna og koma svo tilbaka. That's all.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband