Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

his-und-los

jeminn eini hve þetta var leiðnlegur dagur. Á þann hátt að það gerðist ekkert skemmtilegt. Djöfull er gott að vera kominn heim.

En, ekki er öll nótt úti enn

Það er æfing í kvöld!

Djöfull verður það ógéðslega skemmtilegt

Þessi dagur verður því sennilega að meðaltali mjög venjulegur.

Mikil leiðindi plús mikil skemmtun um kvöldið.

Þetta jafnast út á endanum


Hringur

Tók hring í mosó

1.Par3. Lélegt kippt til vinstri högg með 54°. Yfir og framhjá gríninu. Bömpaði 8 inná grín. Rétt missti parpútt. Skolli.

2.Par5. Togaður ás til vinstri uppá sextándu. Lagði sexu upp. 54° 2 metra frá og rétt missti fugl. Par

3.Par4. Fullkominn ás beint upp brekkuna og oní glompu. Vippaði pw upp úr sandinum og inná grín á efsta pall. Púttaði niður á neðri pallinn en skildi eftir ömurlegt pútt sem klikkaði. Skolli

4.Par4. Lélegt fimmu högg í hægra röff. Sexa úr leiðinlegri legu sem var fullkomin og lenti 2 cm yfir skurðinum og endaði billjantlí 2 metra frá pinna. Setti fuglinn niður. Fugl

5.Par4. Fullkominn ás. Of stutt innáhögg og vippið lélegt en fullkomið pútt bjargaði parinu. Par

6.Par5. Blendingur á miðja braut. 3 tré pínu inn í hægra röff. Innáhögg með fimmu pin high en alveg hinu megin á gríni. 12 metra pútt. Meterspútt í fyrir pari. Par

7.Par5. Fullkominn ás. 4 járn 190m pin high en 3 metra vinstra megin við pinna. Högg dagsins. Rétt missti örninn. Fugl

8.Par4. Flottur ás. Togaði innáhöggið til vinstri. Vippaði sæmilega. Missti púttið. Skolli.

9.Par3. 140m og nía pin high en um 8 metra til vinstri. Tvípútt. Par

Fyrri níu á +1

10.Par4. Fullkominn ás. 50m högg með 60° í metersfjarlægð frá holu. ÍsÍ fugl.

11.Par4. Fullkominn ás. 93m með 54° uppá efri pall. Rétt missti fuglinn. Par

12.Par3. 140 metra högg með pw togað til vinstri. Lobb högg yfir bönker fer í stöngina og kastast 5 metra frá holu. Damn. Ísí þrípútt!!!!!! Dobbúl

13.Par4. Fullkominn ás niður brekkuna. 103 metra högg með 54° pin high. Tvípútt. Par

14.Par4. Ásinn vinstra megin og í nýslegnu röffi. Oní holu! Choppaði honum pínu áfram. Vippaði svo yfir glompurnar og tvípúttaði. Skolli.

Skyndilega kominn +3 eftir að hafa verið að krúsa á parinu án vandræða

15.Par3. 140m högg með áttu. Tvípútt fyrir pari. Par

16.Par4. Rétt sleikti vallarmörkinn og endaði fullkomlega á braut. Togaði níu til vinstri. Vippaði um meter frá. Klikkaði á púttinu. Rugl. Brjálaður. Gjörsamlega öllum að kenna nema mér! Eitt af þessum höggum sem maður skilur eftir á vellinum. Skolli

17.Par5. Beinn ás uppvið brekkuna. Reitt 3 tré pin high en niðri vinstra megin. Lobbaði 60° um meter frá. Ísí fugl.

18.Par4. Dúndraði ás á móti vindi og endaði í fullkomnu færi fyrir næsta högg. Notaði pw til að vera öruggur yfir vatnið og var pin high 5 metra til vinstri. Ísí þrípútt! Fokkin einbeitingarleysis skolli.

+3 á seinni og samtals á 4 yfir.

Allt í allt jákvæður hringur. Ás og pútt fín. Bara þessi innáhögg sem eru að togast til vinstri.


fugl

Flúðir skartar skemmtilegum golfvelli. Fengum rosalegt veður. Sól og logn, svo kom pínu vindur. Sólarvörn og læti.

Ég, Beta, DK, Sebs og mamma fórum í þetta road trip

Við löbbuðum öll saman fyrstu fimm holurnar svo fór non golfurunum að leiðast og þau splittuðu. Þau skoðuðu hesta og stöff á meðan við kláruðum hringinn.

Ég spilað líkt og engill. Flest frábær högg. Sirka tvö innáhögg, eitt pútt og eitt upphafshögg sem kostuðu samtals 5 högg

4 fuglar með b2b fuglum á sextándu og sautjándu.

Þetta var fín frammistaða

Sérstaklega ánægður með ásinn. Hann er orðinn helvíti stabíll og langur. Svo eru innáhöggin og pitchin að slípast til. Púttin fín.

Svo var brunað aftur í bæinn og grillað.

Uppskrift að góðum degi


Flúddagolf

Ætlum á Flúðir á morgun að spila golf

Þeir eru með tilboð í gangi út júní

1500 kr á kjaft á mánu og þriðjudögum

Aldrei spilað þar. Verður stuð


moggagolf

Fór í morgungolf

Var bara helvíti góður....fyrstu 10 holurnar

Svo fór eitthvað

Einbeitingin.......hugsanlega

Veit ekki

Tók fyrstu 10 holurnar á +1 en síðustu 8 holurnar á +8

par,par,fugl,skolli,par,skolli,fugl,par,par = +1
par,skolli,skolli,skolli,skolli,skolli,dobbúl,par,skolli = +8


vinni vinn

Þar kom að því......ég fékk 3 rétta í lottó

Loksins

Var farinn að efast um getu mína í þessum leik

Ég spái því að þetta sé aðeins upphitun fyrir þann stóra

5 réttir....here I come


Bubbi

Horfði á mynd um upptökur á plötunni hans Bubba. Gaman. Góð mynd.

Bubbi segir að hann hafi ekkert fyrir því að semja lög. Þau bara koma á færibandi og þetta sé ekkert mál. Hann hendir þeim bara saman og málið dautt.

Ég fór að hugsa.....Bubbi minn, nenniru að taka pínu lengri tíma í þetta godforsaken ferli. Gefa þér sirka þrefalt lengri tíma með hvert lag.
Það er ekki eins og þessi lög þín núna séu beint skemmtileg. Ótrúlega basic kántrí/þjóðlaga tónlist sem er akkurat, núll grípandi og góð.

Það geta allir hent saman lagi. Þetta eru engin geimvísindi. Þetta verður bara svo óáhugavert ef menn pæla ekkert í uppbyggingu og slíku og bara henda saman nokkrum hljómum og semja texta.

Beta kom honum til varnar og sagði að hann semdi svo góða texta og það væri aðal málið hjá honum.

Vissulega, en það gera lögin hans ekkert betri

Þoli ekki þegar lagahöfundar koma fram og segja annað hvort þetta, eða að lögin séu bara þarna úti og að viðkomandi sé bara að miðla þeim áfram út í gegnum sjálfan sig.

Crappus maximus!

Ef maður vill semja lag, þá verður maður að fokkin setjast niður og verja tíma í að koma því niður á blað og gera áhugavert (fyrir sjálfan þig).


Casa Fatso

Besta Casio æfing ever í kvöld

Nenntum ekki að æfa lögin og tókum bara djamm með bjór og spiluðum eitthvað

Vangefin stemming og gæsahúðar mómentin mörg

Eitt sérstaklega gott session sem núna kallast ,,something something darkside" og er mjög sigurrósarlegt

stay tuned

or not


flaut og ekki flaut

Sé gégt eftir því að hafa flautað til stuðnings útgerðarmanna. Finnst þeir vera vondu kallarnir allt í einu í þessu máli.

Annars veit ég lítið um þetta. Bara pínu.

Tek flautið tilbaka

hvernig gerir maður það?

Bakkar sama vegspotta og flautar ekki?


hmmmm

dyslexia

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband