Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

AÐALL

Senn líður að forsetakosningum

FOKK DAT!!!!!!!!!!!

Ég vil leggja embættið niður og reisa hér voldugt konungsríki

Væri mikið meira til í að hafa hér kóng og drottningu

Ég meina......fyrst við viljum hafa hérna fígúru sem er nánast ekkert nema andlit okkar út á við akkuru þá ekki bara taka þetta alla leið og hafa KONUNG og DROTTNINGU!

Svo myndu litlir prinsar fæðast og prinsessur....ég meina......hver vill ÞAÐ ekki?

Spurning um að tilnefna Davíð Odds sem fyrsta kónginn? Neeeeeeeeeeeeee kannski ekki. Hvað með Björn Jörund? neeeeeeee.........kannski frekar Jakob Frímann Magnússon. Já. Til í það. Hann er alltaf svo virðulegur og skemmtilegur um leið.


Hiti í mönnum

Sebas er með hita og beinverki

Alltaf leiðinlegt

Hann vaknaði kl 6 eitthvað greyið. Við fórum og lögðum okkur bara framm í sófa og kveiktum á ÞÓR og fengum okkur Cocoa Puffs og Trix blandað saman.

Honum líður aðeins betur


Dómaraskandall

Mamma hringdi í mig rétt fyrir niðurstöður kosninga og tjáði mér að uppáhaldslag þeirra hjóna væri Blár Ópal. Og lagið sem vann fannst þeim vera næst best.

Þau klárlega endurspegla vilja þjóðarinnar!

Fannst þetta vera algjör dómaraskandall

Ekki vissi ég að talin atkvæði giltu bara 50% og einhverjir gaurar myndu svo velja bara eftir hentugleika!

Skandall

Samt, þessi blái ópal hefði pottþétt þá unnið hefðu atkvæðin gilt 100%

Sé það núna

Greyið gítararnir hans Magna


Eurovision kosningar

Atkvæði hafa verið talin hér í Þorláksgeislanum og niðurstöður eru sem hér segir:

Prump í hvítum kjól..........0 atkvæði
Magni með Hugarró............3 atkvæði
Jarm í gegnsærri blússu......0 atkvæði
Hrútspungar með kind.........1 atkvæði
Regína með chick lick lag....1 atkvæði
Blár Opal með gubb...........0 atkvæði
Tvö dramatísk í viðbjóði.....0 atkvæði

Ég og DK kusum Magna útaf gíturunum og actually af því að við fílum lagið
Sebas kaus Hrútspungana af því að þeir eru skemmtilegir og töff
Beta kaus Regínu af því að hún er vinkona hennar og lagið var krúttlegt

Svo fór aukaatkvæði á Magna frá Betu af því að hún fílaði niðurbreakið á gíturunum og hvernig það startaði aftur á kraftmikinn hátt

allavega.....það er partí hérna hjá okkur. Sebas með bland í poka, ég með Caramel, Beta með Eitt Sett og DK með mjólk úr brjóstum

Magni vinnur þetta pottþétt!

Þið sáuð það fyrst hér(samt allt örugglega búið þegar þið lesið þetta)


Lottó professional

Ég er heitur í þessu lottói

Vann aftur í dag

Back to back baby!

B2B baby!

Reyndar lélegasta vinninginn

En ég tek hann

Ég var svoldið að klikka á að biðja um fyrsta vinninginn. FYRSTA vinninginn.

Bað alltaf bara um að vinna.

Byrjendamistök


Sterkur

Ég hef verið að kenna Sebas muninn á að vera sterkur í höndum og fótum og svo að vera sterkur í hausnum.

Að vera gáfaður.

Eins og þegar við horfðum á Captain America, þá var strákurinn fyrst ekkert líkamlega sterkur en mjög sterkur í hausnum. Sem er gott.

Þannig stöff

Mér finnst mikilvægt að hann viti af þessu og leggi áherslu á að verða gáfaður

Ekki eins og faðir hans sem fannst sniðugt að segja honum að leikmenn manu væru einmitt sterkir líkamlega en ekki í hausnum.

Var pirraður eftir að hafa tapað í dag og missti þetta út úr mér.

Tek þetta á mig


áhyggjur

Ég hef áhyggjur af Sebas

Hann fílar að horfa á Eurovision og þekkir vel til söngvara keppninnar og slíkt

Uppáhalds karakterinn hans í Star Wars er.....................wait for it.................................Jar Jar Binks!


Sjónarmið

Alltaf gott að skoða þetta.......

http://images.4channel.org/f/src/589217_scale_of_universe_enhanced.swf

........eftir tap gegn manu til að sjá hlutina í réttu ljósi

Þetta skiptir andskotan engu máli

Einn helvítis tuðrusparks leikur

Ekki ef maður ber hann saman við allt annað sem til er!


plan

Stefnan sett á KFC í mosó. Uppáhald Sebbalings. Beta mun fá sér borgara og biðja um að taka salsasósuna af. As usual.

Setti 2þ kjéll á MU vs LP.....að LP myndi vinna....að sjálfsögðu

Þori ekki að horfa á leikinn í kjölfarið

Fæ 6500 makkarónur ef ég vinn. Mun eyða því öllu í líters kókómjólk


LP vs MU

Ég spái þessu sem steindauðu jafntefli

eða

3-1 fyrir LP þar sem Suarez tekur tvennu og Evra með eitt sjálfsmark

Kalt mat


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.8.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 153718

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband