Færsluflokkur: Bloggar
27.2.2012 | 11:12
2 man band
Ég á rythma og Sebs á lead guitar. Hann shreddar sig áfram upp gítarhálsinn á meðan ég held taktinum gangandi. Normal sunnudagskvöld hjá okkur
Bloggar | Breytt 26.2.2012 kl. 17:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.2.2012 | 11:12
11
Ég og Sebas erum alltaf í fótbolta eins og ég hef áður sagt. Tökum alltaf leik uppá 10, svo 5 svo 2.
Í gær sagði hann
,,hey! eigum við að fara uppí 11?"
Honum fannst það spennandi. Mér datt þetta þá að sjálfsögðu í hug
Enda víðfrægt
Bloggar | Breytt 26.2.2012 kl. 15:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.2.2012 | 16:39
Sama sagan
Takið eftir því að ef Liverpool vinnur í dag (lítur reyndar ekki vel út í augnablikinu) að þá fara manjú og arsenal menn að tala um hversu mikill skítabikar þetta er og hversu léttvæg keppnin er. True story.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.2.2012 | 09:28
Útlit......part deux
Ástæðan fyrir þessari útlits pælingu er gítarinn minn.
Mér finnst minn Epiphone Les Paul std svo fallegur með þessum stock sápu picköppum.

En mig langar að uppfæra þá og kaupa eitthvað sem eykur þykkt og kraft hljóðsins. Þá fór ég að pæla að ég vil ekki bara láta eitthvað á gítarinn bara af því að það sándar vel.
Fyrir mér þá þarf þetta að haldast í hendur. Pikköppar þurfa að sánda vel og ekki síður lúkka vel.
Fíla t.d. því miður ekki svona gaura

Bloggar | Breytt 25.2.2012 kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.2.2012 | 09:28
Útlitið skiptir máli!
Mér finnst stundum eins og útlit sé vanmetið
Eins og útlit á golfkylfum.
Margir sem pæla og pæla í virkni kylfunnar, sem vissulega er gríðarlega mikilvægt, en grínast svo með mikilvægi útlitsins.
Dæmigert samtal:
ÉG: ,,....já þessi er stiff, með 9° fláa og svo er hann náttúrulega hvítur"
KÚNNI: ,,HAHAHAHA já, er það þá ekki garanteruð lækkun um tvo í forgjöf! LOL"
Kannski ekki, en útlit er mjög mikilvægt fyrirbæri. Ef þú stendur yfir kúlunni og horfir niður á eitthvað sem þér finnst ljótt þá ósjálfrátt berðu minna traust til kylfunnar.
Ef þú hins vegar fílar kylfuna þína geðveikt, finnst þú vera algjör PUNGUR með verkfærið, þá get ég garanterað að þú spilir að meðaltali betur. Sjálfstraustið eykst við að fíla sig vel með eitthvað, hvort sem það er kylfa eða flott föt.
Útlitið á golfkylfum er mjög mikilvægt.
Bloggar | Breytt 25.2.2012 kl. 22:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.2.2012 | 09:27
Frúin í Hamburg
Við kenndum Sebas að leika, Frúin í Hamburg.
Hann dettur alltaf út eftir tvær spurningar. Alltaf.
,,hvað keyptiru fyrir peninginn sem frúin í Hamburg gaf þér?"
,,Bíl"
,,Bíl?"
,,Já"
BUSTED!!!!!!
Soldið advanced fyrir hans aldur
Bloggar | Breytt 25.2.2012 kl. 21:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2012 | 20:02
Múslimar, hryðjuverk, lógík
Borgarstjóri NY er fylgjandi aðgerðum sem stuðla að eftirliti með Múslimum í moskvum þar í borg.
Múslimar eru brjálaðir og finnst óréttlátt að verið sé að fylgjast með þeim
uuuuuu Af hverju í ósköpum?
Það er nú bara einu sinni þannig að hryðjuverk eða tilraunir til þess koma undanfarið oftast úr röðum múslimskra öfgamanna. Þeir hafa núna stöðvað 14 tilraunir til hryðjuverka á skömmum tíma. Allt múslimar!
Af hverju er óeðlilegt að vilja herða öryggi um þennan hóp og auka eftirlit?
Ef ég væri tengdur einhverjum hópi, segjum.....Vantrú eða hvað þetta heitir, félag trúleysingja, OOOOOG væri ekki að plana hryðjuverk, þá myndi ég að sjálfsögðu fagna auknu eftirliti með hópi þar sem slíkar árásir eru algengar.
Ef þú ert saklaus af plotti og glæp, þá skiptir ekki máli hvaða hópi þú tengist, þú vilt að sjálfsögðu ná vondu köllunum!
.........nema þú sért vondur sjálfur myndi ég halda
Er þetta ekki bara lógík?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2012 | 18:54
Prump
Ég prumpaði í gær og sagði svona í gríni við Sebastian ,,eitt núll!"
Honum fannst það fyndið
Sæll, þegar kvöldið tók enda þá var staðan orðin 1-6 honum í vil
respect
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2012 | 08:39
atvinnumenn gangsins
Eins og svo oft áður þá vorum við Sebs í fótbolta frammá gangi. Fljótlega bættust þrír 7 ára guttar í hópinn. Við erum að tala um völl uppá 3 metra á lengd og svipað í vídd.
Needless to say þá var þetta algjört kaós. Einn fullorðinn og fjórir guttar. Ekkert pláss fyrir að sóla upp völlinn.
Það var samt mikill metnaður í þessum guttum. Ég var í marki og lét þá um að hnoðast með mjúka Ikea boltann.
Hápunktur leiksins var þegar hinn markmaðurinn gaf á einn gaur og hann púllaði eitthvað svaka múv......en missti boltann.
Markmaðurinn hrópaði þá að honum
,,hvað varstu að gera!"
hinn gaurinn, sem núna lá í valnum, sagði
,,þetta var hjólhestaspyrna MAÐUR!"
Þvílíkur metnaður!
Bloggar | Breytt 24.2.2012 kl. 22:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.8.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar