Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Cosmo

Fór í Crossfit á fimmtudaginn

Við vorum bara 4 í tímanum plús kennarinn

Við vorum tveir sem hétum Siggi þannig að í gríni sagði ég við kennarann að til að fyrirbyggja allan miskilning þá væri sennilega best að kalla hann bara Sigga og mig Casio.

Annars myndi þetta ekkert ganga hjá okkur með öllum þessum fjölda þarna inni

Svo vorum við komnir eitthvað áleiðis í æfingunum og hún alltaf að hvetja alla.....nema mig.

,,KOMASO SIGGI"

,,ALLA LEIÐ BJARNI"

og þannig

Svo rétt í lokin þá kom

,,KLÁRETTA COSMO"

Ég bara ,,huh?"

Cosmo?

Stelpugreyið mundi ekki hvað ég sagði og þorði ekkert að hvetja mig þangað til hún lét bara vaða þarna í lokin

Mér fannst þetta mjög fyndið


sólgleraugu

Gerði heiðarlega tilraun til þess að labba inn í búð með sólgleraugun ennþá á mér.

Að sjálfsögðu leið mér eins og hálfvita

En ég lét mig hafa það, svona rétt í tilraunarskyni

En eins og alþjóð veit þá er ekki sól inn í húsum þannig að sólgleraugnanotkun innandyra er frekar dúbíjus

En viti menn.....þegar ég kom út þá leið mér eins og töffarastuðullinn hefði hækkað um heil 0.3%

Spurning um að vera bara alltaf með sólgleraugu


jei

jei

Silversun Pickups að gefa nýja skífu út þann 8.maí

Spenntur.is

Að sögn þá fæddist hugmyndin að þessari plötu á fjarlægum stöðum líkt og Íslandi, Ítalíu og Ungverjalandi.

FOKK

Gaurinn var hérna rétt hjá og ég vissi ekki af því

Samt.....who cares.....samt......fokk


job

11-16 on the clock

Svo fiesta followed by all around good times


dagur

Djöfull er þetta búinn að vera solid dagur

Vann sem skúnkur í dag og leysti alla hnúta

Öll samtöl leiddu í eitthvað gott og allir hressir sem ég talaði við

núna er það Mars Attacks! með DK og Sebs.

Beta send í frí í kvöld

Mars attacks....útaf því að DK talar eins og geimverurnar í myndinni

Stundum er lógík barna góð


morgunsár

Ömmu og afakaffi á leikskólanum í morgunsárið

alltaf mikið stuð og litlu gaurarnir elska þessa extra athygli sem þeir fá

Sebas óskaði eftir nærveru DK
Hann vildi sýna stelpunum hversu sætur hann væri

Hann verður eins og ég....gerir allt fyrir athyglina :)


hætta plís

jæja.......nú má fólk hætta að segja:

,,það er eitthvað" og þannig ,,eitthvað" dæmi

Sniðugt fyrst. Orðið þreytt. Bless


Besta kvöld ever?

Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar er 19.maí
Fyrstu tónleikar Casio Fatso á Kónginum er 19.maí
.
.
.
.
.
Tilviljun?
.
.
.
.
.
.
Uppskrift að epic kvöldi:

18:30 - Mæta á Kónginn og ná sér í sæti
18:45 - Horfa á kickoff af úrslitaleik Chelsea - Bayern M
19:30 - Panta sér feitan börger og stöffa í snjáldrið á sér yfir leiknum
20:45 - Sjá bikarinn fara á loft
21:00 - Casio Fatso telur í fyrsta lag
22:00 - Casio Fatso tekur lokalagið
22:05 - DJ Póski þeytir skífum
24:00 - Rúta í miðbæinn

2 bjórar og 2 skot á 1000kr

Nánar auglýst síðar


listin að nikka

Hafiði tekið eftir því að þegar einhver nikkar til manns, þá nikkar maður ósjálfrátt tilbaka?

Nikka: Blikka auganu og hreyfa hausinn pínu


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.8.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 153706

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband