Leita í fréttum mbl.is

dagurinn

Spilaði í bol í dag í frábæru veðri á flottum velli. Ég og Bjarki skemmtum okkur vel. Reyndar eru grínin ekkert rosaleg. Frekar hæg og stundum bömbí.

Tommi fékk að fljóta með á heimleiðinni. Finnur ekki betri DJ en DJ T-Dog. Hann spannaði allt spectrúm tónlistarsögunnar. Tilþrifamikið.

Horfðum á leikinn í einhverju þorpi rétt hjá vellinum.

Gaman að sjá Wenger grenja.


shottracker

Er að fylgjast með Óla á pga hér:

http://www.pgatour.com/shottracker/#/current/r013/current/group/25/

hver þarf sjónvarp þegar maður hefur þetta.


ble

Sofnaði kl 1:30 í gær og vaknaði kl 4:40. Ég, Henning og Kjarri car pooluðum og vorum mættir tímalega.

Spilaði bara fínt golf

Tapaði fyrst fyrir Rúnari 4/3 og svo fyrir Andra 5/4

Nokkuð sáttur við það bara.

Fór aldrei í þessa leiki til að vinna þá neitt sérstaklega. Vildi bara vera með. Hefði ég unnið þá hefði það bara verið bónus.

Gullfallegt veður og allir í stuði.

Við að æfa ekki neitt í sumar þá er ég að lenda kúlunni mun fjær pinna og skilja eftir lengri pútt. Þess vegna er skorið pínu hærra. Það var vitað. Er bara ánægður að vera aldrei í veseni.

Callaway Razr var að virka fínt. Gott prik.


Íslandsmótið í holukeppni

Prófaði TP Burnerinn í fyrsta sinn utandyra. Til að gera langa sögu stutta þá...nei. Virkar ekki.

Ætla að spila með annað hvort Callaway Razr eða R11 á morgun.

Byrja kl 8:26 á móti Rúnari Arnórs. Tek svo heimamanninn Andra eftir hádegi og loks Bjarka úr GKG á laugardeginum.

Á ekki von á miklu gengi en alltaf gaman að vera memm.

Supposedly 32 bestu kylfingar landsins.

Ekki leiðinlegt að vera partur af þeim hópi.


ryð

FOKK!

Ég er kominn inn í Íslandsmótið í Holukeppni!

Af biðlista

Fokk, er ekkert búinn að æfa, seldi dræverinn og ekki búinn að spila með þann nýja.

Spurning um að dræva bara með gítarnum í staðin.

Ég kenni Henning um þetta allt saman. Hann minnti mig á að skrá mig í mótið.

Curse you!


May the Fuzz be with you!

FOKK!

Get ekki beðið eftir Silver Rose

Þegar hann kemur ætla ég að bóka herbergi í TÞM og perrast einn með allt í botni frá kl 18 til kl 01.

Þá mun ég eiga eitt distortion, einn multi effekt(með milljón hljóðum) og 4 fözza.

Boss DS-2
Zoom G2.1Nu
Big Muff
Fuzz Face
Silver Rose(sem er sambland af Big muff og Super fuzz)
Hyperion

hmmmm pínku of mörg fuzz.

Ætla að selja Hyperion og Fuzz face. Fæ um 17-18þ fyrir þá.

FOKK!


Zombie attack

Mér finnst ekki gaman að fara í apótek. Finnst eins og allir þarna inni séu Zombies í missioni að reyna að smita mig.

Allavega mjög miklar líkur á að minnsta kosti einn þarna inni sé veikur.

Reyni að halda sem mest í mér andanum.


Afmælisgjöf

Ég gerði svo fallegan hlut í gær að mér er nánast mál að pissa!

Ég gaf sjálfum mér afmælisgjöf.

Ég forpantaði(pre order?) Silver Rose pedalinn frá Devi Ever.

Devi Ever er stelpa í Portland Oregon sem byrjaði að fikta við að sjóða saman pedala fyrir nokkrum árum. Er bara ein í þessu og annar ekki eftirspurn núna og er að safna fyrir því að láta framleiða þetta fyrir sig á færibandi.

Silver Rose (sjá í færslu að neðan) er nýjasti pedallinn hennar og menn halda ekki vatni. Hann kom út í sirka júní fyrir almenning en upphaflega var hann hannaður að beiðni Billy Corgan úr Smashing Pumpkins.

Í pedalnum eru sem sagt IC Big Muff (siamese hljóðið) og Super Fuzz blandað saman.

Billy hefur verið að nota hann og líkar vel. Önnur bönd eins og Silversun Pickups, UNKLE, White Stripes og The Black Keys hafa verið að nota aðra pedala frá henni.

Ég sendi henni beiðni á Facebook og hún ætlaði að reyna að koma honum til mín fyrir 30 nóvember. Mikil bið eftir þessum pedal enda skrímsli sem allir vilja.

Pakkinn sem ég tók kostaði 375$ en í honum er Silver Rose, t bolur og Hyperion pedallinn. Mun svo selja Hyperion á sirka 10þ uppí kostnaðinn.

Núna byrjar maður bara að telja niður dagana


pulsugerð

Ég hefði ekki fengið hátt skor hjá honum þessum í kvöld 

 

Ég væri örugglega bara settur í að vísa gestum til sætis.

Klúðraði upphitun á pulsum í kvöld. Beta hló bara af mér. 


Kenning

Hafiði tekið eftir því hve oft lygnir á kvöldin. Svo er logn í blámorgunsárið og svo smá saman byrjar vindurinn að hreyfast upp úr kl 8. Ég er með kenningu. Hugsið eftirfarandi; Fólk fer heim til sín eftir vinnu. Flestir fara heim og borða kvöldmat,...

WTF

...

Oatmeal

Þessi síða er að gera góða hluti http://theoatmeal.com/comics/minor_differences2

R9 gone bye bye

Seldi R9 ásinn minn góða í dag. Þetta var massadagur. Ég og Knútur fórum hamförum í versluninni. Þá er bara spurning hvort ég fái einhvern tíma til að fara golfhring til að prófa nýja kvikindið. TP Burner

Silver Rose

Þetta er svo það næsta sem ég mun eignast! Þetta blæðir hunangi og andar smjöri. Bæði hægt að framkalla fallegt fuzz, basic overdrive í venjulegt rokk og svo hið sargasta surg sem ég hef nokkurn tíman heyrt. Optimal pedall fyrir mig. It will be mine, oh...

Sveit

Óska GR til hamingju með sigurinn

sveitakeppni

Ánægður með GKG sveitina. Unnu riðilinn sinn og komnir í undanúrslit á móti léttara liðinu af tveim. Ég og Sebas kíktum á strákana. Allir bara hressir. Sebas stóð sig vel á vellinum. Passaði sig að vera ekki með læti og trufla ekki. Mun kíkja á þá í...

Liverpool

Komm ON maður! Þvílíkt flottur fyrri hálfleikur svo bara crap í þeim seinni. Whatever. Nóg eftir. Finnst þessir leikmenn bara lofa góðu. Í fyrri hálfleik voru Downing, Adam, Suarez og fleiri helvíti promising. Gefum þessu séns. Næsta...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband