Leita í fréttum mbl.is

Fanboy

Verð nú að viðurkenna að mér leið ansi vel í bílnum í kvöld.

Ég og Sebas fórum á rúntinn til að geta hlustað á lög og sungið með.

Stundum öskrað.

Ok, oftast öskrað.

Ég er alltaf eitthvað að bardúsa við að gera lög og við vorum að hlusta á eitt slíkt sem er nýtt.

Sem er ekki frásögu færandi nema hvað að þegar lagið kláraðist þá segir Sebas:

,,pabbi, ég fann lagið í hjartanu mínu"

*snökkt* [sjúg upp í nef] *snökkt*

Hef sjaldan verið jafn stoltur.


Speki

Knowing what you like dosen´t mean you should only like what you know!

Drop Facebook and face a book!


dilemma

 

aaa

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 tvennt......

 

1. uuuuu alltaf að koma fyrir mig(með símann)

2. hver gengur með úr! 


AAAAAAAAAAA!!!!!!!!!!!!!

IT WILL BE MINE.......OH YES.......IT WILL BE MINE 

The neverending story continues 


Framtíðarspá.......kalt mat

1-2 ár: Keith Richards deyr
5 ár: Íslendingur verður regular leikmaður á PGA
20 ár: Sígarettur flokkaðar sem eiturlyf
40 ár: Kaffi flokkað sem eiturlyf
50 ár: Fólk fattar og sættir sig við að sígarettur séu eiturlyf og skilur ekki hvernig það gat verið svona vitlaust.
65 ár: Ný nothæf tækni kemur fram sem gerir fólki kleift að ferðast hvert sem er á 1 sek
65 ár og ein vika: Piz Buin fyrirtækið eignast heiminn sökum þess að allir fóru til sólarlanda
100 ár: Hugh Hefner deyr
200 ár: Allir sem segjast hafa verið misnotaðir af geimverum fá uppreist æru.
500 ár: Allir ganga um með skáeygð augu og túrban
1000 ár: Allir svífa um með skáeygð augu og túrban

vér mótmælum

Ég veit ekki hvað mér finnst um mótmælin í gær.

Ég vil að eitthvað verði gert. Það þarf að gera eitthvað svo eitthvað gerist. Annars gerist ekkert.

En að kasta eggi í gagnaugað á einhverjum gaur finnst mér ekki vera málið.

Það er eitthvað svo barnalegt. Maður fær aulahroll.

Maður sá þetta í fréttunum og þegar myndavélin skannaði almúgan þá sá ég ekkert nema lítil börn í frekjukasti!

Kannski er það bara það sem þarf. Frekjast áfram.

Veit ekki. Er kannski ekki sá besti til að dæma um þetta þar sem ég á engar eignir né skuldir. Hef mikið til verið bara á hliðarlínunni spilandi golf(núna gítar).

Allavega....nenniðið að nota tómat næst. Örugglega mýkra að fá hann í sig.


Staðreynd dagsins

Toblerone dregur nafn sitt af Theodor Tobler (1876-1941)

Nafnið á súkkulaðinu er blanda af nafninu hans og svo skýrskotun í núggat stöffið frá ítalíu og Spáni sem kallast Turrón.

Word of advice......það eru margir sem fara út í sjoppu og hljóma eins og fábjánar þegar þeir biðja um ,,tóblör-vonn"

Þetta er ekki tobler og svo enska orðið ,,one"

Þetta er eiginlega nákvæmlega eins og íslendingar bera það fram

,,tobble-rón"

Tobler var frá Sviss og nafnið hans borið fram með tveim "b-um"
Turrón er mjög sterkt og endingin borin nákvæmlega fram eins og við segjum tobleRONN.

Vel gert Ísland.

Bara hafa þetta hugfast áður en þið farið út í næstu sjoppu.

Bless


Davíð Kári

Þetta er orðið officialt. Elvis heitir Davíð Kári.

Sebas stakk uppá Davíð
Beta vildi Kári
Ég vildi David Bowie

Beta mun kalla hann Davíð Kári
Sebas mun kalla hann litli
Ég mun kalla hann Bowie (borið fram ,,bóí")

Við viljum nota tækifærið og þakka umheiminum fyrir stuðninginn.

Við fórum ekkert leynt með nafnið og vildum pínu máta það fyrst.

Finnst það vera fullkomið


fuzz

HOLY MOTHER OF ALL THAT IS SACRED!!!!! Gat loksins pantað fuzz-ana mína frá Amazon Soda Meiser og Hyperion (Aenima ekki til). SWEET!!!! Þessir tveir fuzz-ar plús devistortion plús Les Paul plús Marshall.....getur ekki klikkað! Heimsyfirráð eða...

klúrt

Hvað er málið með Grafarvog? Fórum að sækja pitsu í Rimahverfið, við vorum aðeins of snemma þannig að við rúntuðum aðeins. Nokkrum götum síðar fórum við framhjá Spönginni! Spöngin og Rima-eitthvað?

söngur

Hata að syngja! nennir einhver að taka að sér að syngja inn á lög? Djöfull er það ekki ég. Hef ekki þetta drama í mér. Kemur bara mumbl út. Er mun frekar dularfulli rythmagítarleikarinn sem samdi lögin og stendur alltaf pínu til vinstri. Skilyrði: þarf...

álfur út úr hól

Sebas sagðist hafa talað við álf. ég fór að grilla hann um þetta til að sjá hvort hann væri bara að skálda þetta SIR: ,,nú! hvað heitir hann?" SEB: ,,rómverjaálfur" SIR: ,,ok en hvað heitir hann?.....Bjarni?" SEB: ,,nei, hann heitir rómverjaálfur!" SIR:...

Er á leiðinni á námskeið...

Beta er búin að skrá mig á karlanámskeið! Hér á eftir er lýsing á námskeiðinu sem fylgdi með umsókninni: . . . . . . Athugasemd: námskeiðin eru flókin þannig að aðeins átta geta sótt hvert námskeið. Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er eftirfarandi:...

Cobain mótsögn

Er að lesa aftur dagbók Kurt Cobains. Las hana síðast fyrir um 6 árum. Það er gegnumgangandi væll í þessu hjá honum. Hversu allt sé erfitt og slíkt. bú friggin hú! En svo er líka athyglisvert að hugsa til þessa tíma. Í kringum 1990 var mun meira ströggl...

ég er limitless

Sáum limitless með Bradley Cooper. Helvíti góð ræma. Beta sofnaði náttúrulega en....hún er löglega afsökuð í þetta sinn. Cooper tekur lyf sem gerir honum kleift að nota 100% heilans í stað um 20% Needless to say þá verður hann forseti bandaríkjana...

Newsflash!

THIS JUST IN! Það er kominn þriðji tvífarinn! Maður sást á rölti á Akureyri og hann var sláandi líkur mér. Hann gengur undir nafninu ,,nördalegi ég" Þá eru komnar þrjár útgáfur af mér á vappi Rokkara ég Siðmenntaði ég Nördara ég og allt bara á Akureyri!...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband