Leita í fréttum mbl.is

Risaeðlur sem gæludýr

Er að lesa grein í Wired um gaur sem langar í risaeðlu sem gæludýr.

Það er mjög sennilegt að það verði að veruleika.

Hænur eru nefnilega keimlíkar risaeðlum genalega séð.

Og það sem gerir honum kleift að endurvekja risaeðlugenið í hænum er útaf nokkru sem ég hef haldið fram í þónokkurn tíma.

Nefnilega....

Þróun lífforma er ekki straumlínulöguð heldur gerist í pínu stökkum fram og til baka. Sem dæmi má nefna hár á líkama. Sumir fæðast með bringuhár (pínu á eftir) og aðrir ekki með nein hár (pínu framar í þróun). Svo eru náttúrulega til þeir sem eru mitt á milli.

En það sem er athyglisvert er að stundum fæðast dýr með mjög brenglaða hluti eins og hala, þrjár geirvörtur eða rosalega mikið hár á öllum líkamanum.

Þetta eru leifar af fortíðinni og þar sem þessi blessaða þróun er ekki straumlínulöguð þá poppa upp við og við svona öfga gömul genadæmi.

Þessi gaur ætlar að nýta sér það og reyna að triggera þessi gömlu afbrigði risaeðlna í hænum. Stundum koma upp dæmi þar sem hænur fæðast með tennur, stundum með pínu leifar af puttum og þessa fídusa getur hann staðsett og hleypt réttu genastökkunum af stað og fengið risaeðlu!

Jei

Chickenasauros

Þetta finnst mér athyglisvert og ekki síður gaman að mín kenning skuli vera rétt.

Þeir kölluðu mig ruglaðan! Þeir kölluðu mig brjálæðing!

En hver hlær núna!


keppni

Ég fór í ,,Frúin í Hamburg" við Bowie.

Hann vann.


Heima er Betz

Erum við að tala um leiðinlegasta veður ever úti!

En það er hlýtt inni.

Kósí


reverse Benjamin

Við erum með nett reverse Benjamin Button case hérna í gangi. Davíð Kári er orðinn unglingur. Á tveim mánuðum.

Hann orgar stundum frekjulega ef hann fær ekki það sem hann vill.

Fokk

Svo er hann þess á milli ljúfur.

En það koma svona unglingastælar inn á milli

Gaman að því

Ætli hann verði svona týpískt yngra systkin. Frekur og spilltur.

Sjáum til.


Zoom G2.1Nu multi effekt til sölu

Zoom G2.1Nu multi effect til sölu ef rétt verð næst :)

Keypti hann fyrir nokkrum mánuðum og er búinn að leika mér nóg í bili. Það er hægt að tvíka hann endalaust og fá skrilljón mismunandi hljóð. Trommuheili, tuner og bypass.

Best fannst mér þó þessi usb tengimöguleiki. Ég plögga þessu beint í tölvuna og tek upp í hvaða upptökuforriti sem er. Og það er 0% latency (seinkun á hljóði). Svo er náttúrulega hægt að plögga heyrnatólum í tækið og æfa sig á full blast og ekki ónáða neinn.

83 effektar
200 presets
Usb tengimöguleiki
Trommuheili
Tuner
Bypass
Looper
Keyrist með batteríum, 9v rafmagni eða með usb í tölvu

Hér er sjást drive effektar tækisins

http://www.zoom.co.jp/english/products/g2nu/30amp.html


Rachel Ray og ég

Beta horfir á Rachel Ray

Ég velti því fyrir mér hvert mannkynið stefnir því það er standard í þáttunum að þegar hún stráir parmesan osti yfir matinn þá klappa áhorfendur út í sal.

Það er klappað fyrir parmesan osti!

Engu öðru.

Djöfull er þetta steikt.


Trainwreck

Ég elska lestarslys

Þetta er hræðilega sorglegt en samt, maður getur ekki annað en horft.

Það sem flokkast undir lestarslys er t.d. þátturinn ,,kexverksmiðjan" á rúv.

Elska að horfa á þennan þátt ÚTaf því að hann er svo hræðilegur.

Önnur dæmi eru t.d. Leoncie, Geir Ólafs og þátturinn á Skjáeinum sem heitir ,,Tobba".

Reyndar kannski ekki Tobba, nenni ekki að horfa á hann. Hann fer yfir strikið í hallærisheitum.


Ný könnun

Kíkir þú inn í bíla á ferð?

Svarið könnun hér á hægri hönd

DO IT!


líta inn í bíla

Ég er einn af þeim sem lít inn í bíla

Ég stenst ekki mátið þegar ég tek frammúr bílum eða öfugt. Ég lít alltaf inn í hinn bílinn.

Hvað er það?

Maður er svo forvitinn.

Reyndar er ég sérstaklega slæmur. Hef mjög gaman að horfa á fólk. Ég er skæður í Kringlunni t.d.

En ok, þetta með bílana, ég tek eftir að fólkið lítur yfirleitt til baka á mig.

Sem segir mér að hinir eru alveg jafn slæmir og ég

Alheimsvandamál?


punní punní punní

iphone-youtube

Good times

Góðir tímar framundan How I met your mother byrjað aftur á skjánum. Niðurhlóð 5 fyrstu þáttunum. Happy happy joy joy

Dagur

Í dag var góður dagur Helst ber að nefna að ég var on fire í öllum spurningakeppnum í sjónvarpinu. Bæði á stöð tvö, skjáeinum og á rúv. Boris Karloff. BEM! Fiskur án reiðhjóls. BEM! Nanna. Auðvelt! Jón í beinni. Líkt og um hanska væri að ræða! Hallgrímur...

SIR

Samdi lag áðan. Það heitir sennilega ,,We should float for thirteen million years" Fyrsta sinn í langa tíma sem ég tek upp kassagítarinn og sem á hann. Hefur oftar verið bara ég í dúlleríi í Cubase að lita blanco canvas með riffum. Stefnir í að ég taki...

Blink-182

Er pínku að fíla nýja diskinn með Blink-182. Soldið einhæfur en er samt hress stuðboltadiskur. Maður verður að vera í þannig skapi. Þeir eru ekkert að reyna að vera eitthvað annað en Blink-182. Maður heyrir það frá fyrstu tónum að þarna eru þeir aftur...

blogg um blogg

Þegar ég blogga þá kemur það stundum upp á bloggsíðu moggans. mbl.is/blog Fatta oft ekki hversu margar ip tölur poppa inn á bloggið allt í einu. Þá er það birting á mbl.is/blog Fer þar inn endrum og eins svona rétt til að tékká bloggum annara. Ég get...

Ég og Sullenberger

Jón Gerald Sullenberger er vinur minn Hann heilsaði mér í kvöld þegar við heimsóttum Kost En án djóks þá er það virðingavert hve hress hann er þegar maður sér hann þarna innan um hitt starfsfólkið. Djöfull er samt erfitt að vera þarna inni og mega ekki...

elska Who Knew!!!!!!!

Who Knew - Tranquility from Pegasus on Vimeo .

Paul Gilbert

Einn teknískasti gítarleikari samtímans. Ekki mikið fyrir svona stöff en það er ekki hægt að líta framhjá þessu. Eftirtektarvert.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband