Leita í fréttum mbl.is

Bad Ass Eld Renndur Sem Liðast Upp Handlegginn

Ég brenndi mig á úlnlið hægri handar.

Fyrst var ég all ,,FOOOOK, vesen, trúi ekki að ég fái varanlegt far"

Svo var ég all ,,varanlegt far? Hmmmmmm........FOKK YEAH!!!! Töffara tattú!"

Við erum að tala um gríðarlega töff eld renndur sem liðast upp handlegginn

Mér fannst ég ótrúlega mikill bad ass töffari, merktur af íllsku og sval-leika

Þangað til ég fattaði að það er ekkert sérlega kúl að brenna sig við að taka lasagna út úr ofni við matargerð

Hefði þurft að gerast í slagsmálum í austurlöndum fjær upp á líf og dauða eða í helgreiptum áflögum við hákarl.

ÞÁ hefði þetta kannski verið svalt


Mæli með þessu

http://www.addictinggames.com/puzzle-games/perfect-eyesight-game.jsp

Náði best 85%

Beta líka

Tókum sirka 6 tilraunir hvort


Þegar ég vinn í lottó

Fender Bassman 1959 ltd 

Fender Bassman 59 ltd

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Marshall JCM 800 

Marshall Jcm800

 

 


Þegar ég vinn í lottó

Gibson Les Paul Worn Brown 

Gibson Les Paul Worn Brown

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Gibson Les Paul Alpine White 

Gibson Les Paul Alpine White

 

 

 

 

 

 

 

 

Gibson Les Paul Ebony eða Black Beauty 

Gibson-Les-Paul-Black-Beauty-Ebony

 

 

 

 

 

Gibson Les Paul Hetfield signature Iron Cross 

ESP James Hetfield Iron Cross signature series

 

 

 

 

Gretch White Falcon 

Gretch White Falcon
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Yup, ég ÞARF á öllum þessum að halda

 

 


fantasí football

ég er SVO búinn að kaupa Sigurdson í fantasí

Notaði wildcardið

Reikna með því að fá 120 stig næstu 5 umferðir

Léttleikandi Swansea lið

Hrifinn af því


Will Ferrel

Er Will Ferrel besti leikari okkar tíma?

hmmmm kannski ekki

en

Var að horfa á ,,Everything must go"

Alvörugefin mynd með honum frá 2010

Ótrúlega vel leikin

Fátt betra en gamanleikari sem púllar svo alvörugefið hlutverk vel

Fyrst Stranger than fiction

Svo Everything must go

Myndin var bara ló kí og ekki mikið að gerast. Fílaði hana samt.

Will klifraði heldur betur upp listann hjá mér


snýttur

Ég hef masterað listina að snýta sér

Hef hingað til verið mikill anti snýtari

Það skýrist af atriði í fortíðinni

Ég var í sveit, það var heyskapur, milljón manns að raka.

Ég ákvað að sýna hversu mikið karlmenni ég var og snýtti mér með því að loka einni nösinni og dúndra út hinu megin. Án bréfþurrku.

Það tókst ílla

Hortaumurinn hékk niður og fékkst ekki til að slitna.

Ég reyndi að slíta hann með mold og heyi. Klíndist út um allt.

Nærstaddir hlógu og ég skaðaðist til lífstíðar og snýtti mér sjaldan eftir þetta

Án djóks

Ég var í snýtu helvíti

Hef verulega forðast að snýta mér og fundist það ógéðslegt

EN

neyðin kennir naktri konu að spinna

Maður hefur nú eitthvað snýtt sér í gegnum tíðina í þessum kvefpestum en ekkert að ráði þar til núna og bara svona til málamiðlunar

01.01.12 fór ég inn í rugl kveftímabil og hreinlega þurfti að snýta mér or.......DIE!

Það tók mig nokkra daga að mastera þetta

Núna gæti ég snýtt mér með augun lokuð

Kominn með gríðarlega tækni

Smá leyndarmál......þetta er allt í puttunum!

UPDATE: Lítill fugl hvíslaði því að mér að þetta með að þetta væri allt í puttunum gæti skilist þannig eins og ég væri alltaf að bora í nefið. Það er ekki svo. Þetta er tækni með bréfþurrku. Ég læt vísifingur þvera þurrkuna fyrir neðan nefið svo ekkert óvelkomið fari út fyrir hnit bréfsins. That´s all


Sókrates

Fyrsta lagið sem ég lærði utan af var ,,Þú og þeir" eða ,,sókrates" eins og margir kalla það.

Þetta var júróvisjónframlag Íslendinga árið 1988

Ég var níu ára gutti

Ég man að ég lá upp í rúmi þegar ég átti að fara að sofa og þuldi textann yfir aftur og aftur til að muna hann.

Búinn að gleyma honum núna

Heyrði lagið í dag

Nostalgía


Plan dagsins

barnaafmæli
Flísaleggja bílskúr

Allt annað í bið


Fíll

Fíla minute to win it á skjáeinum Fíla svartar 1mm dunlop neglur Fíla 1 lítra kókómjólk Ég vildi að ég væri með 1 lítra kókómjólk núna FOKK!

fö kvö hö Sör

Sendi konuna í frí til vinkvenna sinna í kvöld. Báðir pungarnir komnir í háttinn. Búinn að ganga frá öllu. Lappir officially komnar upp í loft. Sweet nectarine of all that is sacred.

nokkuð gott

(Margmiðlunarefni)

Gnarrenburg

Myndi kjósa Jón Gnarr aftur ef það verður í boði Sá hann í viðtali við fokkin Sigmar í Kastljósinu. Hvernig er hægt að vera svona leiðinlegur eins og Sigmar? Hann bara gat ekki hætt að kenna Jóni um veðurfarið á Íslandi. Eitthvað að gagnrýna mokstur á...

Tune-farts

Eigum við að ræða eitthvað þetta djók sem Tune-yards er! Hlustaði hún á diskinn með Everything Everything og ákvað að herma? Þetta er svo sami fílíngurinn nema EE eru ekki að lúppa sig upp og byggja upp lög í 1 mín með t.d. Boss RC-2 og geta ekkert...

sigursæll

ÓMEN.....lottó tölurnar eru komnar! Ég var mjög nálægt So close but yet so far Var með eina tölu plús bónustölu. Vantaði bara tvær í viðbót og 670kr hefðu verið mínar. Ó sweet nectarine of all that is sacred. Hefði farið beint í nammideildina í Hagkaup...

Lottó

Eins og frægt er orðið þá gerðist ég áskrifandi af lottó og VíkingaLottó fyrir nokkrum dögum. Búinn að bíða spenntur í allan dag eftir drættinum í kvöld í víkíngalottó Var á lotto.is og endalaust að refresha í þeirri von að sjá útdregnar tölur...

THE SON OF FLAMES

Fór í viðtal til læknis sem heitir MAN, THE SON OF FLAMES!!!!!!! eða Karl Logason Var með miklar væntingar og bjóst við ofurhetju eða allavega gaur sem væri óbilandi sterkur og töff Þessi læknir var bara venjulegur maður í bleikri skyrtu Hann var ekki...

Grifflur

Hver notar grifflur? Ég er búinn að vera hugsa þetta í dágóðan tíma núna og hef komist að eftirfarandi niðurstöðu: Lyftingakappar og fólk á áttunda áratuginum Af hverju fann ég þá grifflur hérna í kommóðunni um daginn? Jú, Beta segist hafa farið í...

ÞAÐ ER FUNDIÐ!

Ég hef fundið besta íslenska karlmansnafn sem barn hefur verið nefnt til þessa! Eða öllu heldur, besta combo af nafni og eftirnafni. Ég var að panta tíma hjá lækni og rakst á þetta framúrskarandi nafn Karl Logason MAN FLAMESON!!!!!! Er hægt að vera...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband