Leita í fréttum mbl.is

wífí

Keppinn tengdur loksins. Gamli var þá með wifi eftir allt saman. Ekki að spurja aððí.

Við fórum í júró partí í gær og sáum ísland enda ofar en við héldum og spán gjörsamlega niðurlægð með næst neðsta sætinu.

Fólk hérna hélt virkilega, eins og íslendingar flaska oft á, að Soraya og spænska liðið myndi keppa um sigurinn.

Allir eru þvílíkt vonsviknir hérna og þetta mun pottþétt enda hennar söngferil.

Hér í húsinu er þetta náttúrulega ekki rætt þar sem það kæmi ílla út fyrir los antonios. Þau eru bara þannig. Það sama með að real tapaði í gær og barca urðu spánarmeistarar. Ekki orð um það og los antonios forðast mig í þeirri von um að sleppa við öll slík málefni.

Þau eru soldið spes.

Eftir að júróvision lauk þá var singstar tekinn upp og við kepptum fram til 3 um nóttu. Í blokkarhverfi með opinn glugga. Ég spurði hvort þetta væri í gúdderað af nágrönnunum og þau bara, "hmmm ég veit ekki, hafði bara ekkert pælt í því" og fór svo og náði í snakkið. Dæmigerður spánverji, hugsar ekkert um aðra.

Mér var því alveg sama, þau um það.

Vorum sem sagt hjá vinafólki okkar og needless to say þá rústuðum við þeim. Þau voða brött því þetta var þeirra leikur og við ekkert að flagga því að við áttum svona líka. BEM. algjört rúst. Leikar enduðu 14-0 okkur í vil. Þau unnu ekki einu sinni. Og vildu svo ekkert sérstaklega tala um það (hmmm ætli tengdó séu víst ekki ein um að vera svona spes).

Spánverjinn! Kapitúli útaf fyrir sig.


7 saeti

Ég spái saeti 7 í kv0ld. Enda er thad fallegasta saetid.

ps. ekki enn búinn ad redda mínum t0lvum, hence, thessir útlensku stafir.

Erum á leidinni í júrovision partí á eftir thegar tengdós koma heim úr kirkju. Lofudu ad passa fyrir okkur svo vid kaemumst kl 21:30, virdist ekki aetla ad ganga upp. and so it begins.


Búslódarfjall

Vid tókum á thví í gaer. Fluttum allt draslid med 7 bílferdum á 7 klukkutímum. D0mpudum bara úr t0skunum hérna í villunni og fórum til baka og fylltum í t0skurnar.

Kata hefdi verid stolt af okkur.

Mj0g leidinlegt process.

María var svo dugleg í dag og gékk frá thessu fjalli í stofunni á medan ég var í golfi. Sweet.


Villan

Fyrsta faerslan á nýjum stad.

Hello inlaws.


Fyrir pólskipti

Síðasta færslan frá Las Vinas

Bless íbúð


All hail Mjási.

Gleðifréttir með mjása. Það opnaðist loks leið fyrir greyið til Íslands. Eitt af þessum fyrirtækjum sem við höfðum talað við nennti loks að hreyfa sig og Mjási fær fyrsta farrými beint til Landsins.

Þarf kannski að gista í Noregi í millitíðinni en hann fílar það bara. Night on the town. Hann sléttir bara úr klaufunum, eða loppunum.

Þetta verða sirka 350 evrur, fargjaldið, svo sirka 200þ isk vistin í einangruninni. Í ofan á lag bætist svo allur lækniskostnaður sem hefur verið umtalsverður.

kannski slagar þetta uppí heildarkostnað uppá sirka 300þ smökkerúnís.

Hann á þetta allt skilið, enda einn af okkur.

Þetta telst þá bara sem ammælis og jólagjöf fyrir hann næstu 6200 árin.


Siggi Kutcher

Í öðrum fréttum er það helst að ég er að mjólka Ashton kutcher lúkkið. Með derhúfu og soldið whitetrash legur, (er það ekki annars í tísku).

Eftir að ég sankaði að mér húfum þá hefur þetta bara verið afturhvarf til gamla tímans þegar ég spilaði í marki fyrir B-lið hvatar í yngri flokkunum. Ég endurtek, b-lið.

Á þeim tímum sást ég ekki án hermanna pottloksins græna. Á undan minni samtíð. Johan Edfors fylgdi svo í kjölfarið og skapaði trend.

Anyhúúúú


moving day

Þá er komið að því. Við flytjum út í dag og förum með allt hafurtaskið uppí villuna hjá tengdó tímabundið.

Ætluðum að vera hérna til sirka 20.maí en tökum þess heldur bara alvöru flutning á nokkrum tímum eins og okkur er einum lagið.

Kata, nenniru að koma að hjálpa okkur?

María er enn í skólanum og ég hef skrúfað í sundur allt sem ég gat og er rétt byrjaður að sópa öllu lauslátu í töskur. Það er ekki mín sterkasta deild, hence ég að skrúfa.

Þetta verða nokkrar bílferðir, kannski svona 4-5 bílar. Fáum tvo bíla í viðbót hjá tengdó þannig að þetta verður ógéðslega gaman [segir sigursteinn og klórar sér íonum á meðan að írónían vellur útum eyrunum]

Þetta er sennilega það leiðinlegasta sem ég geri. Held ég skreppi bara í golf á meðan þau gera þetta fyrir mig. Djöfull yrði ég skotinn þá af leyniskyttu á 17.holunni.

Veit ekki hvort sá gamli er með þráðlaust uppí fjöllunum en fastlínu jú. Svo er hann líka með sundlaug þannig að þetta reddast.


Hélt það líka

Enda ekki nema von. Strákurinn fer á kostum dags daglega. Orðinn algjör herramaður. Þegar ég hnerra segir hann Jesús (sem er guð blessi þig á spænsku). Hann er officially orðinn strákur, kominn uppúr smábarna fasinu.

mbl.is Tvítyngd börn fljótari að læra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Courtesy of Graham

Miracle or meds segeh?

Miracle shot or take your medicine, siggi?

Ætlaru að reyna hið ómögulega rescue skot eða ætlaru að vippa þig út úr vandræðum og inná braut?

Tsí-apps (chips)


ROBERT ROCK

ROBERT ROCK er aftur strax kominn í topp baráttuna. Opna írska mótið er núna í gangi og mikið stjörnufans. John Daly er að koma sterkur til baka. En enginn er jafn svalur og ROBERT ROCK

Road trip

Það er búið að setja upp road trip þegar ég kem til Íslands. Get ekki beðið. Það er sökum 10 ára afmælis útskriftar frá MA. Við ætlum að reyna að vera þarna um kvöldið 14.júní og koma til baka 17.júní. Mér var falið það verkefni að koma með Road trip...

Pinseeker

12 milljónir manna sáu leikinn í gær í sjónvarpinu. Fór einn útá völl í dag og spilaði nokkrum kúlum. Ég notaði fjarlægðarkíkinn minn í fyrsta sinn í mjög langan tíma. Örugglega einhverja mánuði. Ég áætlaði metrana og kíkti svo, var oftast innan tveggja...

Kódak

Byrjaði að horfa á leikinn heima. Tók svo ákvörðun um að skella mér niðrá bar eftir að hafa séð að það var troðfullt og stemmingin góð. Ég stökk niður og komst að því að stemmingin var nú ekkert svo rosaleg. Það virtist bara vera allt pakkað þarna inni...

Þú líka

Hef verið að lesa ævi/ferilsögu U2 og líkar vel. Hún heitir U2 by U2. Þetta kveikti áhuga á hljómsveitinni sem ekki var til staðar áður. Hversu gamall er maður orðinn, fyrst bruce springsteen svo U2. Ég réttlætti þetta fyrst með því að fíla aðeins þetta...

bólguháls

María getur varla andað. Þegar hún fær hálsbólgu þá er það ávallt fullorðins. Hálsinn á henni nánast lokast og núna getur hún bara rétt hvíslað. Er samt hress, sérstaklega því hún hefur sinn eigin lýsi sem tekur að sér að lýsa öllu sem hún gerir því það...

Austantjald

Sýnið mér austantjalds slavnesku löndin í keppninni og ég skal sýna ykkur löndin sem komast áfram. Snilld hve íslendingar gera sér alltaf sömu góðu vonirnar um sigur. Fljótir að gleyma hvernig þetta fer alltaf niður (goes...

Inixavi

Leikur leikjanna er á morgun. Leti-Barca. Úrslitaleikur Konungsbikarsins á Spáni og allt á suðupunkti. Atlético Bilbao og Barca eru einmitt þau tvö lið sem eru hvað sigursælust í þessum bikarslag. Mættust síðast fyrir um 20 og eitthvað árum og menn eru...

svona var þetta í álfheimunum

see more Lolcats and funny pictures

Skammtur

Þegar ég fer í golf þá skammta ég mér nógu vatni og nógum mat til að duga mér í 18 holur. Á tíunda teig sagðist graham ætla að sýna mér soldið. okey, hvað. Þá tók hann upp tvö svona energy bar úr töskunni og rétti mér eitt. Ég bara, what! "the brits...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.7.): 9
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 153643

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband