Leita í fréttum mbl.is

GÓS

Fór í mót á GÓS, golfvelli Blönduósar. Þetta var sterkasta golfmótið þarna í langan tíma þar sem ég, Heiðar Davíð, Svanþór og Binni tókum þátt ásamt fleirum góðum spilurum.

Vallarmetið sem Heiðar setti í gamla daga sat enn. Par vallar, eða 70 högg. Menn voru brattir og ætluðu að gera atlögu að því.

Það var snilldar blíða. Allavega fyrstu holuna. Svo kom brjálað rok.

Þar sem þetta er bara 9 holu völlur þá var maður alltaf að rekast á stjörnuhollið. Binna, Heiðar og Svanþór. Maður fiskaði upplýsingar um stöðu og ávallt var það einn eða tveir undir pari hjá binna og Heiðari.

Á meðan ég var einn yfir mestmegnis, leit ekki vel út fyrir mig.

Þetta var skemmtilegt og spennandi.

Þetta endaði þannig að Heiðar tók þetta á +2, svo Svanþór á +3 og ég og Binni á +4. Ég átti bara vipp inná síðasta grínið eftir þegar þeir löbbuðu framhjá og gáfu mér upp stöðu. Ég þurfti því að vippa í holu af 7 metra færi til að fá fugl og jafna við Heiðar í fyrsta sæti.

Steindauður skolli og jafn í þriðja sæti með Binna. Við fórum í bráðabana. Högg af 85 metrum á móti vindi inná níunda grínið. Næstur holu myndi vinna þriðja sætið.

Ég tók léttan PW og dró kúluna of mikið og hún feyktist brjálæðislega og endaði um 20 metra of stuttur til vinstri. Binni tók bara létta áttu og endaði á gríni og hafði betur.

Þetta var nánast ljóðrænt því síðast þegar ég tók þátt í móti þarna og spilaði með Binna, þurtfum við í bráðabana og hann tók mig þá líka. Það var árið 1993. Sextán ár síðan!

Þetta var frábært mót. Mikill fjöldi og góður félagsskapur. Binni vann svo punktakeppnina með 41 punkt held ég. Ég lenti í fjórða sæti og fékk 5000kr úttekt í golfbúðinni í hafnarfyrði. Ég endaði á 36 punktum, akkurat á forgjöf, eftir að mótið var skalað upp um 3 högg. Enda völlurinn mjög erfiður, og ég tala nú ekki um í svona roki. Grínin lítil og með fáránlega miklu landslagi.

En völlurinn samt í góðu ásigkomulagi og vel hirtur af Jóni beina.

skolli,par,par,skolli,fugl,par,par,par,par = +1
par,par,skolli,par,par,dobbúl,fugl,par,skolli = +3


Update

Fórum í bústað til Péturs og co á miðvikudaginn. Það var frábær tími. Slöppuðum af og spiluðum á vellinum glanna.

Síðustu nóttina fór rafmagnið skyndilega og sögur af morðóðum byssumönnum fóru á kreik. Af frumkvæði Péturs og undirritaðs. Taðs. Stelpurnar náttúrulega að pissa á sig af hræðslu.

Fórum svo á dósina á föstudeginum.

Tókum hring um kvöldið þar sem Hafsteinn, pabbi Péturs, vann soninn í höggleik í fyrsta sinn. Það var gaman að impra á því við pétur á sirka tveggja klukkutíma fresti alla helgina.

Svo var smá skrall seinna um kvöldið.

Á laugardeginum var svo tekin fjölskyldu stemming á þetta. Við röltum um slíkt. Við sáum ljótan gamlan amerískan kagga rúnta sirka 5 sinnum framhjá okkur. Við vorum ekki lengi að leggja saman tvo og tvo. Þarna var morðóði byssumaðurinn mættur.

Svo sáum við hann á röltinu á undarlegum stöðum það sem eftir var. Það tók svo botninn úr þegar hann stoppaði okkur útá götu og tók í höndina á okkur og kynnti sig. Reyndar ekki beint sem morðóða byssumanninn en ég var of hræddur og upptekinn við að míga á mig til að geta munað nafnið.

Þetta var mjög skemmtileg helgi og frábært að hafa fengið gistingu hjá Sísu og Hafsteini.


dós

Kominn á dósina og mun slappa af yfir helgina.

bústaður

Við erum að fara í bústað til pedros og co. Kíkjum á þau núna í dag og sofum tvær nætur.

Brunum svo á föstudaginn öll saman á Blönduós á húnavöku og stuð.

Ég tek settið með því ég er svo mikið nörd. Kíki hring á vellinum glanna rétt hjá bústaðnum þar sem Pedro er með frípassa þar.

Svo er stefnt á hring með Binna Bjarka á laugardeginum og kannski mót á sunnudeginum á Blönduósvelli ef ég verð ekki of timbraður.

Ég sem ætlaði að slappa af.


holtið á hvítum straujað

Fór í grafarholtið í gærkveldi með Kristni, Andra og Atla. Spilaði bara vel. Ég fæ 5 högg í forgjöf og var kominn einn undir eftir 14 brautir sem var framar vonum.

Á þessum tímapunkti var komin nótt og drullukalt. Þá byrjaði maður að gera mistök þar sem sveiflan var orðin köld og stirð.

Djöfull eru sumar brautir þarna miklu mun lengri frá hvítum. Shitshen blitsen.

Allt annar völlur, sérstaklega á seinni níu.

Ég var kominn heim kl 01 og drulluþreyttur. En þetta var fínt að testa völlinn frá hvítum í fyrsta sinn. Góð æfing fyrir íslandsmeistaramótið í næstu viku.

Stefni svo að taka annan æfingarhring á mánudaginn og svo á miðvikudeginum. Mótið hefst svo á fimmtudeginum í næstu viku.

Völlurinn er í frábæru standi. Grínin frábær mörg hver. Sum síðri en samt fín.


Hallgr

Byrjaði að lesa bók eftir Hallgrím Helga og snarhætti því eins og skot. Djöfull er hann leiðinlegur rithöfundur. Alltaf að reyna að vera svo ógéðslega töff í hverju orði.

Er núna því byrjaður að lesa Mikael Torfa. Fyrsti kafli er sæmó.

Finnst bara eitthvað svo erfitt að lesa íslenskar bækur. Fæ alltaf smá aulahroll. Svona svipað og þegar maður sér íslenskt leikrit eða þátt.

Er að gefa þessu smá séns þar sem ég hef ekki fundið neitt annað áhugavert aflestrar.

Orðið svo slæmt að ég er byrjaður að endurlesa ævisögur sem ég á.


Hjúkk

Tók hring með Óla í dag. Kom inn á -1 frá gulum og þvílíkur léttir að spila aftur góðan hring eftir þennan fjórða hring í meistaramótinu.

par,skolli,par,par,par,skolli,par,fugl,par = +1
par,par,fugl,skolli,par,par,ÖRN,par,par = -2

Nokkuð sáttur við þennan örn á sextándu. Átti fallegt upphafshögg yfir brúnna. 222mtr í stöng og fullkominn blendingur beint á stöng en stoppaði í röffinu vinstra megin við braut. Óheppinn. Pitchaði svo í holuna þaðan úr háu röffi. Svalur á því.

Óli tók þessu alvarlega og vippaði í á sautjándu í staðin fyrir fugli. Hann svaraði vippinu mínu.

Þetta reiknast sem 39 punktar ef þetti teldi til lækkunar.

70 högg, 9 brautir(75%), 13 grín(72%) og 31 pútt.

Það er búið að ganga frá mótinu og ég lækkaði um 0.4 samtals. Ekkert skalað. Bömmer.

Í öðrum fréttum er það helst að ég er ENN ekki búinn að fá fugl á fokkin fjórtándu brautina í allt fokkin sumar. Er það eðlilegt? Fokk.


chillness

chillness in da breiness í dag

vaknaði, popppunktur (rerun), miðbær 12-15 með mat á café parís, heim í siestu, grill hjá perlu, heim í nethring, bólið.

Uppskrift af góðum degi.

Djöfull er ingó að geraða gott í getzinum gráa útum alla borg. Honum er blastað nonstop og fólk bara..."so last season". operation don´t give a hyenas ass.

Á morgun verður hringur spilaður í góðu tómi með ólmeister von dóseinchester.

Ég spái vallarmeti. Kalt mat.


ingó and the VG

Keypti góðar stundir með ingó og veðurguðunum. Hann er frábær. Ef þú fílar hressleika og létt gamlamanna popp í bílinn þá er þetta málið.

Við misstum nefnilega af þessum hresslögum þegar þau komu fyrst út hérna á íslandi.

Erum núna að fíla þau í botn. Lög eins og bahama, drífa og undir regnbogann.

Við þrjú í bílnum öskrum öll með í viðlögunum.

Er nefnilega alveg búinn að gefast upp á að reyna að kynna fyrir Maríu minn bolla af músíkk í bílnum. Hef löngum tíma eytt í að spila mína cutting edge tónlist fyrir maríu og hún annað hvort stingur hausnum út úr bílnum eða fer í fýlu. Þannig að það er bara hressleikinn í bílnum hér eftir.

Hún er náttúrulega spænsk, þannig að allt verður að innihalda danstakt að sögn svo hún fíli það. Rythma til að dansa við. Annars er þetta ekki áhlustandi.


sæti

Endaði í 7-9 sæti af 24 í meistaraflokk. Grátt svæði miðað við að ég var með áttundu bestu forgjöfina.

Næsta mót takk fyrir.

Move on.


Clueless

Bara eitt um þetta að segja. VANDRÆÐALEGT Farinn á lokahófið að drekkja sorgum mínum.

Montage

Fór að hjóla í fossvoginum og svo í nauthálsvík. Tók mig bara eitt lag að komast frá íbúðinni í víkina. Champagne supernova með Oasis. Djöfull þaut ég áfram. Sem vindurinn. Settist niður í nauthálsvík og naut góða veðursins. Hjólaði til baka og keypti...

3.dagur í meistaramóti GKG

Var rock solid í dag. Með allt inni og ekkert úti eins og skáldið sagði. par,skolli,par,skolli,fugl,skolli,fugl,par,par = +1 par,par,par,par,par,skolli,par,fugl,par = E Póstaði skor uppá +1 í dag sem er einu höggi frá vallarmeti. Ég fæ 5 högg þarna...

Grín

Á morgun fer ég út kl 12:10 í næst síðasta ráshóp í meistaraflokknum. Sem er góður tími. Eitthvað annað en að fara út kl 07 fyrsta daginn (allt of snemmt) og síðan í dag kl 17 (sem er AAAAlltof seint). Við vorum til 22 að spila. Búkurinn er ekki vanur...

Hringur 2 í meistaramóti GKG

Spilaði ver í dag en samt á betra skori! Pósta skor uppá +4 í dag sem er einu betra en í gær. par,skolli,par,fugl,skolli,par,par,TRIBBLE,par = +4 par,par,fugl,skolli,par,par,par,par,par = E Belgaði sirka 4 högg en var bara refsað einu sinni. Fór meira að...

Mjási Mjá

Við náðum í Mjása áðan við mikla kátínu viðstaddra. Hann er kominn í íbúðina og búinn að þefa af öllu. Strax búinn að fyrirgefa okkur þetta ferðalag og kominn í réttan gír. Þau ætla í sund á meðan ég berst við gkg völlinn í dag á öðrum hring í...

Rock Star Supernova Mixalot í djúkaranum

Hver man ekki eftir Rock Star Supernova þáttunum sem Magni tók þátt í. Það var nokkuð gaman að fylgjast með þessu og ég fílaði Lukas Rossi í strimla. Hann vann og þeir gáfu út skífu og fóru í tónleikaferðalag. Svo ekkert meir. Þessi diskur er sæmó sæmó....

Tveir hressir í stuði

(Margmiðlunarefni)

TC and KK

Gjemli gjemli lagði sig eftir hádegismatinn sökum vakningar kl 05 í morgun. Toffee Crisp. Fórum svo í tippalindina í leit að buxum úr gallaefni fyrir gjemla. Toffee Crisp. Ég fór inní fyrstu búðina sem ég sá og keypti fyrstu gallabuxurnar sem ég sá....

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband