Leita í fréttum mbl.is

Snertir brjóst dómara í þýsku deildinni

 

he later got a red car...WITH HER NUMBER ON IT!


10

10

Við erum að tala um töluna tíu. Hún birtist mér svona fyrir sjónum undir kópavogsbrúnni í morgun. Tíu gráðu hiti kl 10:10 og ég að hlusta á X(tíu) - ID(bjöguð tía).

 

Eins gott að það sé ekki tíundi október. Þá hefði liðið yfir mig.

 

ps. það tók mig tíu mínútur að semja þessa færslu. 

 

 


Klippi

Við feðgarnir fórum í klippingu og erum eins og tveir pólverjar. Hank the Tank og félagi hans Mini Tank.

Ný könnun

Yup

ps. mér fannst best þegar einn áhorfandinn öskraði á Luke Donald

"Luuuuuke, use the foooorce!"


EU!

Ekki veit ég af hverju allir eru að fagna svona rosalega mikið. Eftir allt þetta golf þá var það regnhattur Overtons sem vann, ekki Evrópa.

allavega skv vísindalegri könnun á þessari síðu.

En án djóks þá vorum við að fara úr límingunum hérna. Ég, pabbi og mamma.


næsta framlag íslendinga í eurovision?

Ég setti næsta lag inn í djúkarann hér til hægri. Efsta lagið sem heitir Vínber er komið í rotation á öllum betri útvarpsstöðum landsins.

Það heitir Vínber því þegar ég leyfði Sebastian að heyra það þá spurði hann mig hvort þetta væri vínber þegar hann heyrði part 2:33 og áfram. Það er eins og gítarinn væli ,,vínber".

Sebas er svo með þetta.

Mér finnst talsverður munur á gæðum á þessu lagi og fyrsta laginu. Er klárlega að læra betur og betur á þetta forrit. Samt er ég bara kominn með uþb 7% þekkingu á því. Við erum að tala um að það eru haldin námskeið í þessu forriti.

Eins og glöggir hlustendur hafa tekið eftir þá er enginn söngur.

Tvær ástæður:
Í fyrsta lagi þá er ég ekki með nógu öfluga græju til að taka upp góðan söng.
Í öðru lagi þá finnst mér enn svo spennandi að taka upp gítar að lögin eru bara sóló eftir sólo með smá rythma inn á milli.

Það er ekki eins og ég sé mikið að semja lögin per se, heldur er ég bara með forritið opið og djamma nokkra gítarparta inn og raða saman með slagverki. Þegar kemur að því að meika það í útlöndum þá sem ég almennileg lög með söng. Læt ykkur vita.


Ný könnun

Ég var engu nær eftir kosningu um hljómsveitarnafnið. Þið sökkið. Eða...kannski sökka ég og var ekki með nein almennileg nöfn? hmmm

Ég held þá áfram að ganga undir nafninu Led LikkuSmash í ipoddnum mínum enn um sinn.

Nú er komin ný könnun.

Hver vinnur Ryderinn.

Kjósið!


Re active

Ryderinn teygir anga sína til mánudags. Það er orðið ljóst. Það er fínt. Því lengri tíma sem þetta skemmtilega mót tekur því betra.

Maður horfir bara á Elsu fc og Rassana spila á meðan í ensku.

Ekki nenni ég að horfa á OMGþeirsökkasvomikiðPOOL, það er núll skemmtun.

ó btw, djöfull gengur mér ílla í fantasy. Hvað er uppi? Held ég viti það. Á síðasta tímabili þegar ég vann deildina var ég pro-active. Núna er ég Re-active og geri breytingar og kaupi menn eftir að þeir geri eitthvað gott. Áður fyrr keypti ég leikmenn áður en þeir gerðu gott og fékk stigin. Basic. Þetta er engin tengiskrift gott fólk.


Siggi Adams

Já, veruleikinn hjá Bryan Adams og mér er svipaður. Ekki alveg eins en svipaður.

Bryan söng:
I got my first real six-string
Bought it at the five-and-dime
Played it 'till my fingers bled
Was the summer of 69

Ég syng:
I got my first real six-string
Bought it at the Toys R Us
Played it ´til my index finger got really really stiff and painful
Was the autumn of 10

Var að til 2 í nótt að rippa upp nágrenið með hasarhetjusólóum og roughneckriffum.

Er mjög stífur í vísifingri. Ég fagna því og líður vel fyrir vikið. Lækningin er að spila meira. Þá hættir hann þessu væli og mýkist upp á ný. Pottþétt.


AnchorSix

Ég segi nú bara eitt, milk was a bad choice! Ég vaknaði kl 6:29 og staulaðist fram. Kveikti á tækinu og beið. ekkert. Svo kom, ,,útsendingin hefst kl 7". Greit. Ég var með sængina með mér og ætlaði bara pínu að leggja mig á meðan. Vaknaði aftur kl 9 Með...

Glass eye

Fórum á kaffihús í gær. Röltum niður laugarveginn. Sáum Jónsa. Beta brosti til hans. Hann gaf henni íllt auga (þ.e.a.s. vinstra augað, hitt er eitthvað bilað).

Golf

Það verður aftur vaknað kl 6:30 á morgun til að fylgjast með Rydernum. Þetta er uþb skemmtilegasta golfmótið sem maður fylgist með. Ótrúleg gæði sem maður sá þarna inn á milli. Í frestuninni samdi ég lag og útsetti. Fínt að fá svona frestun. Mun skella...

Leiðin okkar allra

Fíla ekki Hjálma. En fíla samt þetta eina lag.

Skinka=Gulrót

Beta keypti kíló af gulrótum í gær útaf því að einhver gæji kom og seldi í hús. Maður verður víst appelsínugulur eða brúnn af því að éta mikið af gulrótum. Sem sagt, maður verður skinka ef maður étur gulrót!

Ryder

OMG Ryderinn er hafinn og ég sit sem lítil skólastelpa fyrir framan skjáin. Spenntari en spennistöð. Vaknaði á undan klukkunni. Fyrst kl 5:46 svo aftur klukkan 6:29. Jei

Nýtt lag hjá SIR

Er að læra á nýja forritið mitt sem heitir Cubase 5. Það er brött lærdómskúrfa sem ég klíf. Ekkert smá flókið stöff. Ég henti inn nokkrum riffum og sólóum og smurði það með smá slagverki. Út kom GÍTARHETJU OPUS II Ég lét það í djúkarann hér á hægri hönd....

Disapprovement Sensei

see more Lolcats and funny pictures

yup

see more Lolcats and funny pictures

Ryder

Djöfull hlakkar mér til að horfa á Ryderinn. Hann byrjar á morgun kl 6:30 og ég verð vaknaður. Ójá. (enda vaknaður kl 6:40 í morgun) Mér finnst allt tal um að Evrópa sé sterkari aðilinn eitthvað mis. Var að renna yfir þessa kalla og mér bara sýnist usa...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 153623

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband