Leita í fréttum mbl.is

farawaykiztan

Sturtuhengið strax búið að borga sig upp. Haldiði að ég hafi ekki lent í hrókasamræðum um einmitt öll þessi Langtíburtuztan lönd. Strákurinn með staðsetningu þessara landa á hreinu.

Atlas

Við keyptum Heimskort Atlas sem sturtuhengi um daginn. Núna er ég alltaf lengi í sturtu.

Legg alltaf eitt land á minnið. Í morgun var það Georgía. Ég legg sem sagt á minnið hvar það er staðsett.

Fáránlegt að vita ekki hvar sum lönd eru í heiminum!

Svo fór ég að pæla. Djöfull er lítill hluti jarðar siðmenntaður. Ég meina, öll þessi tönuðu lönd þarna....afganistan, kirgistan etc. Svo náttla flest öll Afríka, S-Ameríka stígur ekki í vitið og svo fjölmörg lönd þarna í svörtustu Asíu sem eru...tja....ekki siðmenntuð.

Með siðmenntaður meina ég að sjálfsögðu að vera ekki heimskur. Með heimskur meina ég að sjálfsögðu að vera ekki í nútímanum. Túrkmenbashi, Chavez, Sómalía, N-Kórea etc....þarf ég að segja meira!

Við erum í svo miklum minnihluta finnst mér. Stríð er það eina rétta í stöðunni. Tökum restina bara yfir. Málið dautt.

Ég sé að sturtuhengið verður að koma niður áður en ég starta byltingu.


Ný könnun

Finnst þér rétt að trúfélag geti komið í leikskóla og skóla og boðað trú sína?

Mér nefnilega ofbýður þegar ég heyri að prestar mæti í leikskóla og slái um sig. Mér finnst ekki í lagi að hafa svona áhrif á börnin. Og líka á svona óréttlátan hátt. Því ekki sé ég fyrir mér að vantrú myndi fá aðgöngu að börnum. Nei, bara þjóðkirkjan.

Mér finnst að það ætti að sjálfsögðu að kenna trúarfræði í skólum en þá bara söguna. Bara kynning á hverju fyrir sig. Alveg eins og landafræði eða eitthvað álíka.

Þeir sem trúa og vilja að börnin sín fái þannig uppeldi geta náttúrulega bara stofnað þannig skóla. Málið dautt.

allavega....kjósið


listin að slow clappa

Við vorum við matarborðið og ég framkvæmdi múv sem verður ekki endurtekið næstu hundruði ára. Þetta er ekki sagan af því. Þetta er sagan af því sem gerðist næst.

Þar sem ég leit stoltur yfir borðið eftir múvið heyrði ég mér á hægri hönd, klapp. Svo annað klapp. Tíðni klappa jókst svo hægt og bítandi og áður en ég vissi af var Beta búin að slow clappa mig. Og ekki nóg með það þá tók hún líka standing ovation í kjölfarið.

Síðar um kvöldið fór ég að hugsa ,,af hverju slow clappar maður ekki oftar".

Ég ætla að gera það að reglu að slow clappa sem flesta við öll hugsanleg tækifæri. 


umkringdur

Ég er að labba.....BEM! björgunarsveitarmaður búinn að króa mig af.

Ég labba aðeins meira....BEM! björgunarsveitarmaður búinn að króa mig af.

Hvað ætli þeir séu búnir að spurja mig oft hvort ég vilji kaupa eitthvað stöff!

Virðingavert framtak hjá þeim en þeir eru nánast of margir.

Ég passa mig samt alltaf á að brosa.


Púll

Til hamingju Liverpool með að standa sig vel í fótbolta. Maður nennir kannski að fara horfa á leiki aftur með þeim.

Gaman að sjá Torres endurheimta formið. 44 mörk í 47 heimaleikjum hjá Torres, ekki slæmt.

Stjörnurnar eru að stíga upp. Fyrst Captain Fantastic um daginn, svo núna Torres. Þeir spýta smá sjálfstrausti í liðið vonandi.

Þetta virðist vera að snúast við. Við erum sennilega búnir að snerta botninn og erum að spyrna okkur upp. Ekki ólíkt íslenska efnahaginum.


draumur um krydd

Mig dreymdi geimverur, Andreu Jóns á rás 2 og gítar effekta!

Geimverurnar voru spúkí. Þær litu út eins og við en töluðu ekki og brostu bara geðveikislega.

Svo vakti Beta mig er hún gekk inn í herbergið með rúllur í hárinu og sagði ,,hey, lít ég ekki út eins og alien?"

Súrrealískt móment.

Við borðuðum kjúklíng í karrí. Karríkryddið hennar Betu fæst ekki lengur og hún var ekki kát með þetta nýja krydd. Hún setti í raun nýjan standard í reiði er hún sagði ,,ég er svo reið að ég held ég fari og stofni þráð á barnalandi um þetta".

Ég bara ,,VÓ! sú er reið".


hippar með ukalele hræða mig

Fórum á dansnámskeið í Kramhúsinu með Sebastian. VÁ! hvað það var leiðinlegt. Hippinn sem stjórnaði því var að fara yfir um. Hún elskaði að hlusta á sjálfa sig syngja á falsettunni með ukalele.

Ég og Beta bara litum á hvort annað og áttum erfitt með okkur. Við létum okkur hafa það fyrir Sebas. Sem reyndar var ekkert mikið að fíla þetta. Ég held að hann hafi líka verið að hugsa ,,hvurn djöfullinn er ég að gera hér".


ég elska þennan gæja!


Rokk

Mér finnst ég aldrei eins töff og þegar ég er að spila eins og brjálæðingur á gítarinn og það slitnar strengur. Það gerðist núna fyrir tveim dögum. Í kjölfarið skipti ég um alla strengina og men ó men hve mikið betur Behringerinn...

skammtafræði

Hvað er málið með skammtastærðir veitingastaða! Alltaf þegar ég og Beta snæðum úti tökum við dobbybag með okkur heim. Á einn bóginn er ég ánægður því þetta eru í raun ekki bara tvær máltíðir heldur sirka 3-4. Spara.is En á hinn bóginn þá hef ég áhyggjur...

geitur sem verða hræddar

(Margmiðlunarefni)

lag dagsins

Coldplay á skoskum sterum

Golf

Er að horfa á strákana í kína. Phil, Tiger, Westwood og Kaymer. Það gengur bara vel hjá flestum. Brilliant að byrja þetta kl 8 á morgnana. Þetta HSBC mót lofar góðu. Svo eru æfingar að fara byrja hjá afrekshópnum aftur. Fundur í kvöld til að spjalla...

víðsýnn

Búinn að finna loksins fleiri gítara sem mér finnast fallegir. Fann m.a. nokkra Ibanez gæja einn Jackson og einn G&L. Það sem ég sem sagt forðast og finnst ljótt er þessi feiti kúlurass eins og er á mörgum Gibson gíturum. Einnig finnst mér ljótt að sjá...

Metallicu draumur

Er orðinn svo manískur á gítara að mig dreymir þá. Var að tékka á ,,year and a half with Metallica" myndinni til að tékka á öllum þessum gíturum sem þeir notuðu við gerð svörtu skífunnar. Ég sofnaði óvart yfir henni og byrjaði að dreyma svona líka...

Mánarölt

Ég hafði ekkert að gera í dag þannig að beinast lá við að læra að moonwalka. Segir sig sjálft. Er orðinn nokkuð sleipur í því, bada bing! Þessi pjakkur nær þessu nokkuð vel. Fíla gæjann í lokin sem kallar strákinn gay.

Stratocaster vifta

Fór inn í Hljóðfærahúsið og þefaði af öllum Ströttunum sem héngu upp á vegg. Þeir eru með umboðið fyrir Fender á Íslandi. Var svona að fræðast aðeins meira um þessa senu. Góður Strat byrjar í kringum 145þ kjéll og fer svo hækkandi eftir týpu og ári. En...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 153622

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband