Leita í fréttum mbl.is

færsla

Ömurlegur dagur fótboltalega séð. LP gerir skíta jafntefli við skítseyðin úr hinum helming borgarinnar. Man og Tott gera markalaust jafntefli og ég fæ bara 26 stig í fantasí og fell niður um nokkur sæti. GOR.

Í öðrum fréttum er það helst að Sebas er hress og átti stórleik í dag. Mjög skemmtilegt barn þó ég segi sjálfur frá.


Ímyndunarveikur

funny pictures - ...stealthy...like a silent shadow...like a passing cloud...like...
see more Lolcats and funny pictures

FYRIR AFTAN ÞIG!!!!

Funny Pictures - Paranoid Seal Gif
see more Lolcats and funny pictures

SPARTA!

Djöfull fíla ég Sparta!

Það er svo fyndið, ég tek svona rispur með þeim og gleymi þeim svo í einhvern tíma. Uppgötva þá svo skyndilega aftur. Svona er maður einfaldur.

Þetta er sirka akkurat músík sem hentar mér. Aggresíft en mjög melódískt power rokk með flottum öskursöngvara. 

At the drive-in var náttla úber skemmtilegt band og synd að þeir hættu. En í staðin fengum við Sparta og svo The Mars Volta. Sú síðari náttla frekar kúkí shit. Myndi segja að ég fíli sirka 10% af því sem þeir eru að gera.

Án frekari tafa þá eru hér tvö myndbönd af flottum skít

THIS TIME I´LL GET IT RIGHT!

Fann svo ekki studio version af síðara laginu en þetta er skítgott. Mæli með part 2:38 og 3:40. En mæli samt mest með því að fólk hlusti á alla Wiretap Scars skífuna, hún er góð. Frægasti singullinn náttla ,,Cut your ribbon".


Ný könnun

Í hvaða sæti endar Ísland á HM?

Kjósið!


Bítlarnir alltaf þéttir

Hvernig ætli þeir hafi náð þessu þykka gítarriffi svona þéttu? Brilljantín?

 


Dót fyrir Sigga litla

Það sem ég var að fara kaupa mér í fyrri færslu var Boss ME-25. Þetta er multi effect fyrir gítarinn. Í staðin fyrir að kaupa einn effekt, á segjum 4þ-15þ þá er þetta tæki með 120 effektum og verðið var 20þ!

Gæjinn auglýsti þetta tæki en kom svo bara með ME-20 sem er eldra og sirka helmingi slakara.

Þetta kostar 41þ nýtt þannig að þetta voru reifarakaup. Potentially.

Fólk spyr sig þá af hverju allir séu ekki bara með svona multi effekta tæki í stað staks effekta. Jú, því það á að vera pínu verra sánd í þessum tækjum og atvinnumúsíkkantinn snobbar fyrir því.

Ég held að þetta sé nú líka pínu að menn vilja halda í gamla tímann. Vissulega er hljóðið ekki nákvæmlega það sama, en það er eitthvað sem ég og svona meðaljónar heyrum ekki. 

Allavega hér er kynningarmyndband 

Og hér sést hvernig loop effektinn er notaður. Nokkuð spennandi stöff. 


Agi

Þetta verður sirka aginn í bandinu mínu. Það líðast engar feilnótur!

google neitar að birta veðrið í Rvík

Upphafssíðan mín neitaði að birta veðrið í Reykjavík. Ég held að það sé útaf því að þeir halda að við séum að fokka í þeim. Eða að þeir hugsi að það sé ekki hægt að hafa alltaf svona friggin viðbjóðslegt veður og þetta sé einhver galli hjá þeim. Nennir...

að standa við hluti

Ég fann tæki sem ég virkilega vildi eignast á hugi.is fyrir tæplega viku síðan. Á hálfvirði miðað við búðarverð og ég fáránlega spenntur. Hafði samband við gæjann og hann vildi selja mér stykkið. Frábært. Hann ætlaði að senda mér sms með tíma og stað...

Freaks and Geeks: A turd

(Margmiðlunarefni)

Freaks and Geeks II

(Margmiðlunarefni)

Freaks and Geeks

(Margmiðlunarefni)

fokkin C class leikarar

Djöfull er sjónvarpsmarkaðurinn að fyllast af þáttum með ,,C" leikurum í aðalhlutverkum. Þetta er ömurlegt. Ég man hvernig þetta var fyrir nokkrum árum, þá voru allir þessir sökk ass leikarar aðallega að reyna að meikaða í kvikmyndum og fengu í besta...

Trúlaust Ísland 2020!

Komst að því að sirka 400-300 fyrir kristmund voru gæjar að koma með kenningar um að við værum ekki miðja alheimsins og slíkt. Svo bara náði það ekki alveg fótfestu og þessi hugsun náði ekki að þróast þar til einhvern tíman um 1600 eftir kristmund. Lá í...

Skítaferð

Hvernig stendur á því að ég verð gáfaðri og gáfaðri eftir því sem ég skít meira? Hmmmmm..... Jú, ég á svar við því. Ég er að lesa ,,The Grand Design: The answers to the ultimate questions of the universe" eftir Stephen Hawking. Ég verð gáfaðri og gáfaðri...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband