Leita í fréttum mbl.is

www.rockabyebabymusic.com

Jæja, eins og flestir vita þá eigum við von á barni. Með það í huga er ég byrjaður að leggja grunninn að tónlistarlegu uppeldi barnsins.

Það er náttúrulega það eina mikilvæga í uppeldi barnsins eins og allir vita.

http://www.rockabyebabymusic.com/ecom2/index.php/music/rockabye-baby-lullaby-renditions-of-smashing-pumpkins.html

Skrollið pínu niður og þar eru tóndæmi.

Þetta er spes fyrir pínu börn. Svo þegar barnið er sirka eins árs þá skiptir maður yfir í alvöru lög.

Radiohead
http://www.rockabyebabymusic.com/ecom2/index.php/music/rockabye-baby-lullaby-renditions-of-radiohead.html

Likkan
http://www.rockabyebabymusic.com/ecom2/index.php/music/rockabye-baby-lullaby-renditions-of-metallica.html

Guns n Roses
Zeppelin
Nirvana
U2
Stones
Pearl Jam
Pixies
Pink Floyd
Coldplay
Bítlarnir og svo miklu fleiri.

Brilliant síða.


Bað?

Var hann í einhverskonar tilvistarkreppu!

 Because I´m Bað, I´m Bað!

And The Whole World Has To
Answer Right Now
Just To Tell You Once Again,
Who's Bað?

Ég held að hann hafi verið eitthvað ruglaður þessi Michael 

bað


Ný plata frá SIR

Monolog er komin út á Gogoyoko

http://www.gogoyoko.com/#/album/Monolog

Henti í nýtt 12 laga kvikindi. Fékk tvö lög lánuð frá fyrri skífunni, Analog, enda sóma þau sig betur hér að ég tel.

Þessi plata er rökrétt framhald af Analog. Mun þéttari og betur mixuð, enda orðin skólaður í Cubase :)

Ætli hápunktarnir séu ekki Kill Bill og Zoom. Veit ekki, orðin frekar samdauna þessum hávaða.

Verð samt að vara við því að það er ekkert sungið á þessari skífu því ég hef ekki fundið söngvara sem ég fíla. Því vantar smá karakter og grípandi laglínur á þessa plötu sem að mörgu leyti er nánast helmingur sjarmans. Treysti því að fólk fylli inn í eyðurnar sjálft.

Reyndar er söngur í einu lagi því ég lét feel good slagarann ,,Beta Max" fljóta með.

Um leið og maður finnur einhverja rödd þá uppfæri ég bara lögin.

Monolog......fæst í öllum betri netverslunum sem byrja á Gogo og enda á yoko nálægt þér!


Sebas

var eitthvað að gramsa í djúkaranum hér á hægri hönd og uppgötvaði aftur þrjá síðustu hljóðbútana.

Þetta var tekið upp þegar Sebastian var pínu lítill og við bjuggum á Spáni. Mér finnst ómetanlegt að eiga þetta.

Þarna er samtal á milli mín og hans nokkrum sekúndum eftir að það hafði verið kallað á okkur í mat. Við sátum inn í stofu fyrir framan tölvu og Sebas orðinn glorhungraður. Hann reynir að segja við pabba sinn að drífa sig í ,,matinn" en heimski ég skildi hann ekki og fór bara að spjalla við hann.

Vert er að geta þess að ,,lúlla" merkir að hann vill ekkert tala um það. Allt bara ,,lúlla" því hann vill bara ræða um ,,matinn".

Svo er þarna teknó útgáfa að Sebas. Ég tók upp eitthvað söngl í honum og skellti smá teknó pönki yfir.

Sú þriðja og síðasta er Sebas að syngja Starálfur eftir Sigurrós. Ég söng þetta stundum til hans í vöggunni og hann byrjaði bara að syngja tilbaka.


TÞM

Mæli með TÞM. Ótrúlega flott aðstaða fyrir fólk sem vill spila smá mjúe-sekk.

Þeir skaffa í raun flest basic hljóðfæri og slíkt ásamt náttúrulega herberginu.

Þetta eru 15 herbergi þar sem rúmast sirka 50 bönd.

4þ kjéll fyrir kvöldið sem er frá kl 18 til miðnættis. Deilist svo niður á haus.

Leningrad Cowboys yrðu í góðum málum hjá TÞM. Voru þeir ekki 10 samtals. 400kr á kjaft!


Sterling

Ætla að bíða með að verða spenntur yfir þessu 16 ára efni frá Liverpool. Spurning hvernig hann plummar sig á velli með fullvöxnum karlmönnum. Hann fór með LP út til Prag, vonandi fær að einhverjar mínútur. 


Ný mjúsikk frá SIR

Það styttist í nýja plötu frá mér. Hún er að hlaðast inn á gogoyoko as we speak.

Hún heitir Monolog og er 12 laga kvekendi.

Eitthvað pikkels hjá gogoyoko því hún er búin að vera hlaðast inn í nokkra daga.

Sendi þeim meil og þau eru að vinna í þessu.

Ég vil nú ekki byggja upp of miklar væntingar fyrir þessa útgáfu en við erum að tala um epic plötu hvorki meira né minna.

Mun láta vita þegar þetta verður loks komið á gogo

Stay tuned


kosning

Ég verð nú að segja að ég er ekki ánægður með þessa kosningu hér á hægri hönd.

Gula peysan á skilið meiri virðingu!


mmhm

...

Hetja

...

að tala við sjálfan sig

Fólk sem talar við sjálfan sig. Hvað er með það! Sá einn slíkan gæja í gær og fór aðeins að hugsa um þetta. Komst að þeirri niðurstöðu að það hlyti að vera að aðeins vel sturlað fólk gerði þetta. Ég meina...prófið að tala við sjálfa ykkur. Ég prófaði það...

Megamind

Sáum Megamind í gær. Hún var fín. Will Ferrel, Tina Fay, Jonah Hill, Brad Pitt og Ben Stiller. Nánast idiotproof cast list. Get vel mælt með þessari mynd. En hún var ekkert sú besta sem ég hef séð. Ekki jafn góð og t.d. the incredibles. Beta sofnaði yfir...

Snúrur

Fór í gegnum allar snúrur heimilisins. Þetta var allt komið út í vitleysu. Ekkert skipulag á þessum ormum. Fyrsta skrefið var að afflækja allt draslið. Það tók á þolinmæðina. Beta hjálpaði með í lokin þar sem hún sá að ég var við að flippa út. Við erum...

Dubai

Livescorehunter.com er búinn að sanna sig þessa helgi. Horfi á dubai mótið með Tiger, Rory, Sergio, Westwood og co í gegnum þá síðu. Sjónvarpið er nefnilega í notkun af Sebas. Ótrúlega spennandi mót, engin sem hefur rifið sig frá grúppunni. Ég held að...

Allir eiga afmæli í dag

Sebas fékk þá glimrandi hugmynd að við ættum öll afmæli í dag. Við bökuðum því ekta súkkulaði afmælisköku með nammi ofan á og kerti. Svo sungum við fyrst fyrir Sebas og hann blés á kertin. Við kveiktum aftur í kertunum og sungum fyrir mig og ég blés....

Skálmöld

Var að uppgötva brjálaða hljómsveit sem nefnist Skálmöld. Þeir gáfu út diskinn Baldur í desember og er svo mikið sudda þungarokk að ég bara er eftir mig. Getting too old for this shit! Þetta er sem sagt víkinga metall með Bibba fremstan í flokki. Gæjinn...

update

Það nýjasta hjá Sebas er að fíla Empire state of mind með Jay Z. Hann fílar samt ekki Jay Z heldur bara Aliciu Keys. Syngur svo hástöfum ,,nújor, nújor, konkrí djöngúl verdríms Ameido"

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband