Leita í fréttum mbl.is

Morse Code

Núna er hápunktur golfsumarsins að detta inn.

Meistaramót

Ég byrja á morgun kl 7

Fyrstur út

Spila með ,,SkálfyrirGessa" og Nonna.

Það verður rok og það verður rigning. Gerist ekki betra.

Búinn að merkja boltana mína með morse kóða, hann lítur svona út

...
..
.-.

Stendur fyrir SIR

Keypti annan regnhanska, orkubar, powerade

Case closed

Gangi mér vel


Leirdalur

Fór minn fyrsta hring uppí Leirdal í gærkvöldi. Fínt veður og ég kom heim kl 23

Sleppti reyndar 15-18 og rölti uppeftir.

Flottar breytingar sem vallarstarfsmenn hafa dundað sér við. Búnir að laga í kringum nokkur grín. Vel gert.

Grínin eru fjarska falleg. Mjög bömpí en mikið rennsli samt sem áður.

Myndi segja að völlurinn væri í svona lala ástandi. Bara ágætur.

Sá að Birgir Leifur mun ekki taka þátt í meistaramótinu. Jei þá verður þetta ekki bara keppni um annað sætið. Massfreð og Tunnan að keppast um fyrsta og sirka 3-4 að keppa um þriðja sætið. Rest keppir um að verða ekki í júmbó sætinu.

Hlakka til


nýtt og ferskt

Mig langar svo mikið að heyra eitthvað nýtt og ferkst.

Eitthvað í anda naked and famous meets early smashing pumpkins meets at the drive inn meets modest mouse.

Eitthvað sem er ekki fjöldaframleitt og markaðsett.

Einhver?


mosó

Spilaði mosó í morgun. Alltaf skemmtilegt að prófa nýja velli. Þessar nýju fjórar brautir eru skemmtilegar. Vantar náttla teiga og tvær brautirnar mjög hráar en það er bara pínu Afganistan stemming í því.

Spilaði eins og alltaf. Ílla. En þetta var samt mjög skemmtilegt. Gaman að spila með Póska og frú.

Fann pínu sveiflu á tímabili. En það er samt ekki nóg. Mun ekki taka þátt í Íslandsmótinu í sumar. Hef ekkert þangað að gera.

Tek meistaramótið bara uppá stemminguna.

Þarf svo mikið að fara og æfa og spila. Öðruvísi viðheld ég ekki þessari forgjöf. Klárt mál.


Veðmál

Er að fara spila kl 9:50 á móti Póska og frú útí Mosó.

Opna Golfskála mótið.

Það er hliðar veðmál í gangi við Inga Rúnar og Knút. Þeir vilja bjór undir en ég Malibu Leche. Flestir punktar vinnur.

Það verða læti.


Blast from the past

Þrumulostinn!

Þetta orð hef ég ekki heyrt í allavega áratug. Las það áðan.

Það sama og ,,Hip Hop Halli"

,,ég bít ekki á ryðgaðan öngul"

Man ekki fleiri en það er fyndið hvað sum orð eða orðasambönd bara deyja.


Lélegur

Vá hvað ég er lélegur í golfi. Þetta er ömurlegt. Maður er bara glaður þegar hringjum lýkur nú á dögum.

Pútterinn flottur í dag. Annað var lélegt.

Var að spila með nýjum fleygjárnum í fyrsta sinn og ekki alveg að ná að temja innáhöggin. Voru soldið að koma mér í opna skjöldu.

Ásinn datt inn í lokin.

Það er svona þegar maður hefur ekkert spilað í sumar. Ekkert leikform. Tala nú ekki um æfingarleysið.

Ég er búinn að ákveða að ef ég held áfram á þessari braut í sumar þá tek ég ekki þátt í íslandsmótinu. Nenni ekki að borga 17þ og keyra svo alltaf til Keflavíkur fjóra daga í röð og spila eins og selur.

Á það ekki skilið.


mót

Fer í mót núna kl 11:40 út í Hfj. Bíð spenntur eftir að prófa kylfurnar eftir að hafa beygt þær og lagað.

Bridesmaids

Horfðum á Bridesmaids. Hún er góð. Mjög góð ef þú fílar leikkonuna. Sem við gerum. Þetta er SNL gellan. Hún er svo mikil ,,næsta Meg Ryan" að það er ekki einu sinni fyndið. Hún er sæt, krúttleg og fyndin. Mæli með þessari mynd. En þetta er ekki mynd sem...

Gítarhetja turned golfer

Ég er golfari á sumrin en gítarhetja á veturna. Staðfest. Hef ekki snert gítarinn eftir að sumarið byrjaði.

Golf

Loksins er golfsumarið að byrja hjá mér fyrir alvöru. Er skráður í mót á morgun en ef ég kemst ekki útaf vinnu þá ætla ég minn fyrsta hring uppí leirdal í sumar. Win-Win situation.

ráðning

Mig dreymdi Bon Jovi í gærnótt. Ég vaknaði svo klukkan 4:20 með magaverk og hraunaði í klóstið í sirka 10 mín. Ætli séu einhver tengsl þarna á milli? Eftir að hafa lokið því af sofnaði ég aftur og dreymdi Rory McIlroy! CRAZY!!!! P.s. önnur kenning um...

RUGL

Hugsið eftirfarandi: 1. Íslenska A landsliðið í knattspyrnu spilar á EM! Spilar þar leiki og þetta fer fram á nokkrum dögum. Brjáluð athygli og mikið fjallað um þetta í öllum fréttatímum. Gerðir sér þættir um mótið þar sem fjallað er um leikina og slíkt....

Stafrófið

Sebastian þóttist kunna stafrófið. Var að keyra heim og hann byrjaði að syngja í aftursætinu A,B,C,D,E,G,L,EVRA, BAÐIÐ, TVÖ ÞÚSUND KALL. Svo kom eitthvað meira stöff. G kom sirka fimm sinnum fyrir. Lagið var pottþétt. Hann þarf aðeins að vinna meira í...

Belfry

Fór í golf í morgun með Knúti. Í herminum. Spiluðum Warwichshire völlinn. Knútur sökkaði en ég rokkaði. Helvíti skemmtilegt.

jyup

Það er allt vitlaust að gera í fitting hjá okkur. Mér finnst það eiginlega það skemmtilegasta sem ég geri. Er algjört nörd þegar að þessu öllu kemur. Enda manískur þegar ég fæ áhuga á einhverju. Í öðrum fréttum er það helst að mig daulangar í TM Ghost...

fínpússun

Lét Keisarann beygja kylfurnar mínar. Áhugaverðar niðurstöður. Fór beint í Golfskálann og prófaði. Pw fór úr 114 í 118 9 úr 126 í 135 8 úr 140 í 142 7 úr 151 í 159 6 úr 160 í 171 5 úr 177 í 180 4 enn 187 Svo voru PW til 6 flattar út um 1°. Það...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband