Leita í fréttum mbl.is

Beautiful

Ég var svo ánægður með lífið eftir þessa leikskóla heimsókn að allt virtist frábært. Fór og skráði Maríu í átak fyrir konur, keypti diska í Ikea og sat þar og las og kjamsaði á kjötbollum. Þvílíkt fallegt útsýni frá matsalnum.

Fékk mér að sjálfsögðu daim súkkulaði köku í eftirrétt og var ekki lengi að processa það niður líkamann í loft formi.

Ég þurfti hins vegar að bíða eftir að ég kæmi inn í deildina þar sem öll ilmkertin eru til að losa, vitandi að fnykurinn myndi fljótt leysast upp og verða að enga. Eða það var allavega mín von. Þvílík tillitssemi hjá stráknum. Rare moment of respect for others.

Þar sem maður var staddur í garðabænum þá nennti ég ekki að keyra aftur í vesturbæinn og koma svo aftur til að ná í Sebas í síðasta sinn á leikskólann hans hér. Þannig að ég er núna bara heima hjá mömmu og pabba að lesa aðra bók Stieg Larsson.

Bíð eftir að ná í strákinn og svo brunum við í vesturbæinn.


Gullborg

Við fórum á Gullborg á okkar fyrsta fund varðandi aðlögun Sebastians sem byrjar á morgun. Þvílík paradís sem þessi leikskóli er. Ég var bara ógó spenntur fyrir hönd Sebastians.

Svo var starfsfólkið svo skemmtilegt. Svo er þetta flest fólk á okkar aldri og pínu eldra og mikill metnaður í leikskólastarfinu sýndist mér. Mikið um að vera. Allskonar kúrsar og skemmtilegir hlutir sem Sebas á eftir að læra um.

Þau eru með Sjávar þema í gangi og fara í fjöruferðir, eiga tvo fiska og slíkt.

Ég fer með hann á morgun og ætlum að vera í smá tíma. Vonandi 2-4 tíma.


Ódýrt skemmtiatriði í næstu gæsun!

Try JibJab Sendables® eCards today!

sandpappír

Þar sem ég kom úr sturtunni og strauk handklæðinu um nakinn líkamann þá var mér hugsað til handklæða umræðunnar hér forðum.

Maður var alltaf að sjá þessar auglýsingar með dúnmjúkum handklæðum og þannig. Einhver kom þá með góðan punkt um að hver vilji eiginlega þannig handklæði?

Maður vill eitthvað grjóthart sem rífur upp húðina í hverri stroku. Eitthvað sem actually þurrkar bleytuna upp í stað þess að ýta henni bara. Þessi dúnmjúku skilja svo oftar en ekki svona tau ryk eftir á líkamanum.

Mér fannst þetta svo góður puntkur.

Handklæðin mín eru skraufþurr, örþunn, sandpappírs rasparar.


kjefti

Vesturbærinn búinn að ná landsbyggðinni að stigum í þessari könnun. Svo er brandarinn einnig kominn með stig, loksins. Var enginn að gúddera hann þangað til núna eða...? bara rugl

Varón

Skil ekki af hverju ég fæ ekki fleiri stig í fantasy leiknum! Ég er með svo solid lið. Massa leikmenn og slíkt.

Soldid vörn----bosingwa--vermalainen--Johnson--Bassong
Miðjan--------Dunn--Gerrard--Elliot
Solid Sókn----Torres--Drogba--Hines

Svo er ég með Hart og Sörensen til skiptis í markinu. Þeir eru númer 3 og 4 á stigalistanum sem er vel.

Tók þann pól í hæðina að fórna soldið miðjunni fyrir vörn og sókn.

En hryggurinn í liðinu er klárlega Bos/Verma/Johnson Svo Gerrard svo Torr/Drogba

Hinir eru svona uppfyllingar.

KOMA SOOO


eta

Fór á BC MF æfingu í morgun og var svo undarlega þreyttur eftir það. Eftir skutleríið á famelíunni þá lagðist ég uppí rúm og rotaðist til kl 12:30!

Rúmlega þrír tímar sem ÉG á aldrei eftir að sjá aftur.

Er hressari núna.

Reyndar óétinn en mun standa fljótlega upp og opna ískápinn. Ekki strax samt.


Þrisvar í viku

Fór í ljós í fyrsta sinn í uþb 10 ár. Bekkurinn kannaðist nú samt enn við mig. Síðast þegar ég fór var ég í menntaskólanum á Akureyri. Ungur peyji að reyna að púlla eitthvað tan lúkk.

MASTER

Ég fór og gerði fleiri eintök af lyklum af íbúðinni. Falleg eintök. Ég tók mér góðan tíma í að útskýra fyrir Maríu hvaða eintak gékk að hverju. Það er nefnilega ekki bara ein hurð sem maður fer í gegnum til að komast inn í þetta virki. Svo var að...

+1

Fór níu þar sem Leirdalurinn er lokaður frá og með deginum í dag. Greit. Var ryðgaður en með moments of brillians á milli. skolli,skolli,skolli,fugl,par,par,par,par,fugl = +1 Átti besta högg sumarsins á þrettándu sem í dag spilast sú fjórða vegna lokunar...

Golf

Aldrei þessu vant þá ætla ég í golf. Ætla að drífa mig í góða veðrinu og taka hring í Leirdalnum. See u leiter heiter

Mjási

Fyrsta alvöru nóttin afstaðin hérna í nýju íbúðinni. Við vorum sammála um að við hefðum sjaldan sofið jafn vel. Mér datt strax í hug samlíking við fyrstu nóttina okkar í San Fran eftir langt ferðalag þangað og í dúnmjúka rúminu þar(sem var himneskt)....

eggvopn

5 ára barn stungið með eggvopni. EGGVOPNI! er ekki í lagi með fólk! Hver ræðst á einhvern með Eggvopni? Hvernig lítur annars svona Eggvopn út? Spyr sá sem ekki veit!

Íbúð

Flutt inn í Nesveginn og líkar vel. Þetta er flott skipulögð íbúð með killer svölum, eða patio, to be exact. Erum núna bara að bíða eftir að það komi einhver og taki rúmið, sófann og þvottavélina til að geta komið okkur þægilega...

auli

Ég er að reyna draga úr aulahúmor þessa dagana. Leiðigjarnt til lengdar. Held að 15 ár af slíku sé yfirdrifið nóg. Þetta er samt hægara sagt en gert því ég stend mig alltaf að þessu annað slagið. Í morgun var ég í sturtu og María kallar til mín "við...

Mubbla

allt stöffið tilbúið til flutninga. Nokkrar töskur af fötum, mublur og köttur. Þetta tók ekki langan tíma. 5 mín að taka rúmið sundur(Ikea), 30 mín að henda í töskur. BEM!

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.7.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 153646

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband