Leita í fréttum mbl.is

nýjar myndir

vek athygli á nýjum myndum í albúmi 25 á myndabloggi hér til vinstri. Þeir sem ekki eru með lykilorð, bara senda mér línu og málið dautt.

Hvaða texti er þetta á glugganum?

Hvað stendur þarna? hint....með þér.Texti á glugga

Suðusúkkulaði a la KJ

Carrie: hey, what ja got there?
Doug: [reluctantly says] Chocolate.
Carrie: Could you break me up a piece?
Doug: [long sigh] Just because it´s divided into pieces dosen´t mean it´s supposed to be shared. Suddenly it belongs to the community!

Airwaves

Time Sódóma Reykjavík
20:00 Soundspell
20:50 Króna
21:40 Leaves
22:30 Mammút
23:20 Kidcrash (US)
00:20 Who Knew

Af sirka hundrað þúsund og fimmtíu böndum(lesist 147) þá eru einu böndin sem mig langar að sjá Króna og Mammút.

Þau verða að spila á fimmtudaginn á Sódómu.

Verst að það er uppselt á allt þetta drasl.

Spurning um að kíkja samt í dyragættina og athuga hvort maður fái ekki að stinga nefinu inn. Fæ Sverri bara í að láta hleypa mér inn. Hann kemur öllum alltaf inn allstaðar. Natural talent í því að koma sér fram fyrir raðir.

Hver er til í að koma með mér á fimmtudaginn á sódómu?

ps. var að tékka á þessari us grúppu kidcrash....ertu ekki að grínast í mér! Hef ekki heyrt hallærislegra rokk síðan í NAM!

pps. var að kynna mér Who Knew og þeir rokka. Svipar til clap your hands and say yeah! Gott stöff, bara verst hve þeir fara seint á svið.

ppps. HAHAHA það hlaut að vera. Það er önnur grúppa sem kallar sig Kid Crash og hún sökkar eins og ofangreindar línur segja frá. En sú sem ætlar að vera á sódóma er bara ágæt. In your face hard indie rokk. Soldið eins og mýkra at the drive in eða eitthvað álíka.


netsamtal

Fíla þennan nýja samskiptaflöt hjá hinum ýmsu stofnunum útí bæ. Í staðin fyrir að hringja og spurja um eitthvað þá er www.tr.is t.d. með netsamtal þar sem maður spjallar bara við þjónustuaðila í gegnum netið. Mjög skilvirkt.

Þetta er í annað sinn sem ég fer þá leið og er ánægður með.

Það er öðruvísi ambians í kringum þannig samskipti. Einhvern vegin getur maður bara komið sér beint að efninu, og fær oftast bara hreint og beint svar á móti. Öngvir misskilningar á ferð sökum óviðeigandi líkamstjáningar.


Mjási fylgist með

Mjási er útí öllum gluggum. Hann er ekki að gúddera þetta rok. Honum finnst svona vissara að fylgjast með því just in case.

Annað slagið skýst hann eitthvert, annað hvort útaf hræðslu eða því hann hefur heyrt eitthvað áhugaverðara í öðrum glugga.


Potential Spoiler alert

Er búinn að lesa allar þrjár bækurnar í þrílógíunni eftir Stieg Larsson er kenndar eru við Millenium.

Þetta var frábær lesning. Þær renna núna allar saman í eina sögu fyrir mér. En það sem stendur klárlega upp úr er allt er viðkemur Salander því hún er svo skemmtilegur karakter.

Svo var það snilldin ein þegar menn voru aflífaðir í réttarsalnum, sérstaklega þegar vídeóið var sýnt. Gæsahúð.

Þegar maður lítur aftur þá finnst mér eftirtektavert að margir karlarnir í sögunni eru klæddir í mittissíða leðurjakka og gallabuxur. Gæti ekki verið meira næntís eða þá samtímafólk í rússlandi.

Mig grunar nefnilega að þessi Stieg Larsson hafi verið soldið nörd. Þá meina ég að honum finnist slíkur klæðaburður bara eðlilegur.

Svo var líka gaman að fylgjast með Blomkvist þar sem hann var svo klárlega alter ego Larsson. Geðveikt einbeittur, snilldar blaðamaður(larsson var blaðamaður) og vaðandi í kvennfólki ALL THE TIME. Engar konur stóðust hann.

Allt í allt þá gef ég þessari seríu 4 af 5. Ef við berum það við LOTR t.d. þá fær hún 4,5 af 5 hjá mér. HHGTTG fær t.d. 5 af 5 hjá mér. Svona svo þið hafið eitthvað til að bera saman við.

Myndi segja að hálf stjarna fari í súginn sökum lélegrar þýðingar. Ég meina, hver skrifar for ever með bili, gæti kannski verið fræðilega rétt en bullcrap segi ég nú bara. Svo er ólýsanlega pirrandi að sjá punkt á milli alls sem hreyfist D.V.D og T.V. og fleira í þeim dúr.

Maður lét það samt ekkert spilla ánægjunni við að lesa þetta.

Mæli með þessum bókum, þó yfirhæpaðar í hell þær séu.


calvin

réttup hönd sem langar á Októberfest! Hef aldrei farið en mér skilt að þetta sé ekkert spes. Bara fullt af drukknu fólki í lopapeysum inní tjaldi. FINE BY ME. Það er akkurat það sem læknirinn pantaði.

Reyndar er viðbjóðs veður þannig að ég efast um að nenna eitthvað að tralla um helgina.

Maður ætti frekar bara að drullast á boot camp æfingu kl 9 á laugardagsmorgun. Úlfljótsvatn eða eitthvað álíka. Það er rendevouz staðurinn. Einhvers staðar útí rassgati. Glætan að ég nenni því. Fer ef það verður jafn heitt úti og það er undir sænginni minni kl 08:30 um morguninn.


meatball

Hvað er betra en heimalöguð Meatball sandwich!

Frosið brauð
köttaðar kjötbollur yfir brauðið(reddí til upphitunar)
Spreyja tómatsósu yfir
Kovera osti yfir allt draslið
dúndra öllu í örbylgjuna
One hot mama meatball sandwich, ready to go

top it off með 0.5ltr af kakóglasi, nýmjólk.


doug

king of queens maraþon í gangi á þessu heimili. http://www.atdhe.net/6457/watch-king-of-queens strímað af netinu. sczhjíminní jeeee

Arthur´s classic QOK moments

Douglas: did you have a good day Arthur: yeah, been pretty busy, long story short, all the carpet downstairs is now roughly the same length. Arthur: I've got two words for you: I'm staying right here! Carrie: That's four words. Arthur: Well, here's four...

skannað

Fékk fullt af gömlum myndum frá Sverri og lét skanna þær inn. Priceless myndir frá Ibiza ferð fjórðubekkinga MA og svo nokkrar myndir úr tvítugsafmæli Sverris og Péturs. Ég skellti inn einni góðri af þeim tveim. Ekkert of vandræðalegt. Ég fékk nefnilega...

Tvítugir, ungir og gullfallegir

ég var beðinn um að taka þessa mynd af netinu. Ég nefni enginn nöfn en ákveðinn aðili hafði í hótunum. Hann hafði áhyggjur af því að óprúttnir aðilar myndu vista myndina hjá sér og nota gegn sér. Vonandi að það hafi ekki farið...

Öskur

Ég vil benda áhugamönnum um vel útfærð öskur að kíkjá þennan bút sem ég setti í djúkarann hér á hægri hönd. Það er efsta lagið og er eftir nýju hljómsveitina Króna þar sem Biggi í maus er við stjórnvölin. Ég hef lengi verið áhugamaður um góða öskrara....

bada bing

so this cowboy goes into a german car dealership and says "audi" and the joker strikes again

klisjufrasar snjáldursins

vill alls alls ekki vera leiðinlegur en mikið obboslega væri ég feginn ef facebook notendur myndu draga aðeins úr ákveðnum klisju frösum. "á einn lítinn Lasarus" "Góðan daginn" (kata, þú veist hver þú ert) ................ ............var uppfullur af...

Brútal veiðimaður

Brútal veiðimaður http://www.b2.is/?sida=tengill&id=327408

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband