Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2010

LoLdogs

ég átti þetta inni. Vonandi verður mér fyrirgefið. Að spamma LoLdogs er eitthvað sem ég reyni að gera lítð af sökum kvartana.

athyglisverðar staðreyndir um The Rolling Stones

Fyrstu þrjár plöturnar innihéldu bara blús og R&B cover lög og 1-3 frumsamin af keith/Jagger. Á fjórðu plötunni, Aftermath, voru bara lög eftir strákana og allar götur síðan.

S-ið var tekið af Keith Richards fyrstu 14 ár sveitarinnar því þeir töldu að Keith Richard væri meira pop. Að það hljómaði betur.

Brian Jones var frumkvöðull að stofnun hljómsveitarinnar en lést árið 1969.

Jagger og Jones áttu að hafa tekið nokkrar veltur í heysátunni skv heimildum. Það skapaði spennu milli þeirra og Jagger líkaði aldrei við Jones eftir það.

Bítlarnir voru gerðir út sem vel klæddir englar sem allar tengdamömmur myndu vilja sem tengdasyni en The Rolling Stones voru markaðsettir sem akkurat andstæðan við það.

Eftir stríðsárin reyndu stjórnvöld í Bretlandi að stýra ungviðinu af vinnumarkaðnum svo fyrrverandi hermenn sem voru á heimleið myndu hafa einhverja vinnu við komuna heim. Það var því lögð mikil áhersla á að krakkar myndu halda áfram að læra eitthvað framhalds nám. Frá árunum 59-62 voru því táningar eins og Keith Richards, John Lennon, Ray Davies, Pete Townshend, Jimmy Page, Ron Wood og David Bowie allir í breskum listaskólum fyrir vikið.

Mick Jagger gékk hins vegar í The London School of Economics.


lélegt prósentuhlutfall

Er byrjaður að lesa ævisögu Keith Richards. Er kominn að árinu 1963 þegar allt fór af stað hjá þeim.

Ég kíkti yfir skífurnar þeirra á wiki til að tékka hver væri veigamest. Kom mér á óvart að allar þessar 22 skífur (24 í usa) innihéldu bara um 1-2 þekkt lög. Það er engin afgerandi plata sem stendur upp úr ef maður miðar við hve mörg þekkt lög séu á þeim.

Þetta sannast með því að kíkja á safnplötuna forty licks frá árinu 2002. Þar eru 25 fræg lög af 40. Rétt rúmlega eitt lag á skífu í gegnum árin. Með fræg meina ég að nánast hver sem er myndi þekkja lagið.

Svo sem ekkert slæmt að eiga 25 mjög fræg lög en samt.....kannski ekkert spes miðað við 47 ára feril.


Stephen Fry

Hef verið að horfa á ferðaþátt Stephens Fry á mánudagskvöldum á rúv. Hann er frekar skemmtilegur. Hann er svo rosalega gay. Mjög propper og ruglar oft kanann með breskum hreim og orðalagi.

Hann er sem sagt á ferðalagi um usa og er að kynna sér menninguna þar. Sjötti og síðasti þátturinn er næsta mánudag.

Ég er að niðurhlaða öðrum þáttum sem hann stjórnaði. Þeir nefnast QI og virðast vera frekar fyndnir.


Getraun

Vitiði hvað næst besti skíðagöngumaðurinn í Finnlandi heitir?
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
Narti Halana (narta í hælana)

morgunæfingar

Ég get ekki sagt ykkur hve hressandi það er að vakna kl 5:20 og mæta á æfingu kl 6.
Svo ég reyni mitt besta þá.........EKKI SVO MIKIÐ.

Það er svo erfitt að rífa sig upp. Hausinn á mér hugsar alltaf það sama: ,,blessaður vertu, þetta er nú meira ruglið, sofðu bara lengur og málið dautt."

Mér tekst nú samt alltaf(lesist oftast) að blekkja hugan og stekk upp og fæ mér seríós. Vélin vaknar við það og dagurinn byrjar.


Nördzer

Ég fílaði bláu skífuna með Weezer mikið á sínum tíma(1994).
Hápunktar: My name is Jonas, the world has...., Undone the...., Say it ain't so og það besta only in dreams.

Svo kom Pinkerton(1996) og toppaði hana. Brakandi góð.
Hápunktar: Tired of sex, Across the sea, the good life, el scorcho, Pink triangle og falling for you.

Gærna albúmið(2001) var líka fínt. Síðri, en samt ágæt. Þrjár góðar skífur og enn í góðum málum.
Hápunktar: Don't let go, photograph, Islands in the sun, simple pages, O girlfriend.

Svo kom maladroit(2002) sem sökkaði. Obligatory að sökka smá líka, þetta getur ekki allt saman verið dans á rósum. Fíla bara lagið slob.

Make believe(2005) er líka léleg. Samt skárri en maladroit.
Einu lögin eru This is such a pity, hold me og kannski eitt til tvö í viðbót.

Rauða albúmið(2008) er líka lélegt. Þar eru bara tvö góð lög, en ó hvílík lög. Í raun eins og weezer gerast bestir. King og heartsong. Rokka.

http://www.youtube.com/watch?v=s7qJCRpofdU

http://www.youtube.com/watch?v=-VBvM33UX3Y

Ratitude(2009) er léleg.

Þannig að.....tvær brilliant skífur, þriðja platan góð en næstu fjórar sökka. Góður ferill? Harla.

ps svo eiga þeir gott kover af the weight sem kom út sem aukalag á rauðu skífunni.

....nei bara svona ef einhver hafi verið að velta þessu fyrir sér. Ofangreind upptalning kallast Músíkkus Pervertnus á latínu.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 153093

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband