Leita í fréttum mbl.is

Búmm

Fór í gær að horfa á barca-real leikinn. fullt af enskum og írskum börum hérna í Cala de mijas þannig að ég smeygði mér inná einn írskann. Settist niður og tók fljótt eftir því að það var yfirgefinn bakpoki við borðið. Ég leit í kringum mig og sá þar tvo bræður(afríska) glottandi í áttina til mín. Ég spurði þá hvort bakpokinn væri á þeirra vegum og þeir svöruðu á bjagaðri spænsku sem ég varla skildi að svo væri raunin. En svo bætti annar þeirra við að ég hefði ekkert að óttast, það væri ekkert búmm búmm í pokanum Shocking

Ég var ekkert að pæla í slíku þegar ég sá þennan bakpoka einn og yfirgefin þarna við borðið, en eftir að annar bróðirinn sagði þetta sat ég í svitabaði og taldi nánast niður sekúndurnar sem ég átti eftir ólifað. Ég var ekki lengi að gúlpa í mig appelsínusafann sem var nýkominn á borðið til mín og kvaddi viðstadda eins og myndi aldrei sjá þá aftur.

Ég fór inn á annan bar og horfði á barca tapa annars leiðinlegum og bragðdaufum leik. Þarna fóru 90 mínútur sem ég fæ aldrei aftur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hola! var ad fá slódina ykkar, mun fylgjast vel med í framtídinni..

Kissikiss

Sigrún Eva 

Sigrun Eva Runarsdottir (IP-tala skráð) 27.12.2007 kl. 14:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 153119

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband