Leita í fréttum mbl.is

update

Jæja pípúls

DK fer að nálgast árið
Sebas er á leið til Spánar með mömmu sinni í sumarfrí
Beta byrjuð að vinna aftur

Tíminn líður


vel

Djöfull viðrar vel til tónleikahalds!!!!

Alskýjað og drungalegt

Ekkert gaman að spila í glimrandi sól og birtu

Miklu betra að hafa þetta kolsvart og epískt

Allir velkomnir í kvöld á Þýska barinn


Bananakallinn

Ég og Sebastian vorum staddir í lyfju í lágmúla um daginn að bíða eftir afgreiðslu lyfseðils.

Er við stóðum þarna þá skyndilega segir restless Sebastian

,,hey pabbi! sjáðu þessa kalla!"

ég lít við og sé þá að við stöndum við hliðiná risa smokkastandi. Fullum af allskonar smokkum og nokkrum með svona bananakalli. Einn kallinn á brimbretti, einn logandi, einn glóandi etc....

ég bara ,,mhm, ég sé"

Lyfja var stútfull af fólki, flestir hóstandi og rest gamalt fólk

uppáhalds crowdið mitt

SEB: ,,HVAÐA BANANAKALL VILT ÞÚ VERA PABBI?"

,,fokk" hugsaði ég ,,nenni ekki að ræða um smokka við 5 ára guttann minn fyrir framan allt þetta fólk"

,,Bara......þessi" sagði ég

SEB: ,,HAHA ÞESSI Á BRIMBRETTINU?"

,,já já, þessi á brimbrettinu"

SEB: ,,EKKI ÞESSI MEÐ ELDINN?"

,,mmmmmm"

SEB: ,,PABBI! EKKI ÞESSI MEÐ ELDINN?"

,,jú jú, þessi með eldinn"

SEB: ,,ÞESSI MEÐ ELDINN ER UPPÁHALDS BANANAKALLINN MINN"

,,mhm, flott"

SEB: ,,PABBI.........HVAÐ ER ÞETTA ALLT?"

,,FOOOOOOOKK!!!!!!!!!!!"

Ég snarlega breytti um umræðuefni og fór beint í sjampó deildina til að fela mig


þögn

phjúff. Ég hafði bara ekkert að segja þarna í sirka 10 daga. Soldið mikið að gera hjá kjéppenum um þessar mundir.

Eins og flestir vita þá er tónleikahald með Casio Fatso doldið ofarlega í huga

Tökum gigg annað kvöld á Þýska Barnum

Frítt inn, allir velkomnir

Fyrsta band á svið verður sirka kl 21:30

Við komum svo sirka kl 23 og lokum kvöldinu með rokkpung og stælum


svekk

Djöfull er ég svekktur út í þessar kéllingar

Ashley.......þetta er fokkin kvennmannsnafn!


Lög

Casio Fatso er að gera góða hluti á æfingum um þessar mundir

Tímalausir smellir eru að líta dagsins ljós

Við þurfum ekki annað en að horfa á gítarana og lifechanging móment verða til

Lög eins og....

Something something Darkside
Wheenbear
Forgotten Hummers
For someone else

....eru að slípast til og munu á endanum bætast við eftirfarandi lög:

Sun falls down
I Bleed
4 hearts in 1
Heartbeat
It's measured in tears
We should float for thirteen million years
Sullivan boys
Don't stand up

Munum frumsýna Forgotten Hummers á fimmtudaginn á Kaffi Amsterdam og ef allt gengur upp þá líka Something Someting Darkside.

Frítt inn á miðvikudagskvöldi. Byrjum kl 21:30


Superstaaaa

5 tímar með þunga betri týpu af rafmagnsgítar um axlirnar er meira en að segja það. Daginn eftir er maður með gríðarlega vöðvabólgu í öxlunum sem framkallar mikinn hausverk í kjölfarið

Það er ekki tekið út með sældinni að vera rokkstjarna

Tók þannig æfingu á föstudagskvölið og vaknaði svo og fór á ættarmót í gríðarlegum hita og góðu veðri

Með hausverk allan tímann

Mér var ráðlagt að taka pillur við þessu. Svona er rokkstjörnulífernið mar....allir að bjóða manni pillur hægri vinstri!

Ég stóðst mátið í þetta sinn


mót

Fjölskyldan er að fara á ættarmót uppí Haukadal núna

og ég ennþá í náttfötunum

Beta er brjáluð

Tíhí


tilkynning

Casio Fatso spilar á tónleikum fimmtudaginn 28.júní á Kaffi Amsterdam og svo aftur miðvikudaginn 4.júlí á Þýska Barnum

Með okkur verða tvö önnur bönd

jei


úmpf

Er búinn að vera með erting í hálsi í 2 daga. Vaknaði í morgun og gat ekkert talað. Var bara stíflaður. Náði að ræskja mig nógu mikið til að geta tjáð mig.

Sebastian: ,,Pabbi, af hverju ertu svona pirraður?"

ÉG: ,,aæsdkjfalæskdjæflasjdfajalalkdj"

Hann hélt að ég væri pirraður útaf því að ég hljómaði sem Satan meets Darth Vader meets Tom Waits

Ég barðist í gegnum daginn. Lýsandi eiginleikum golfkylfna líkt og djöfullinn.

Var kominn í um 60% þrek í lok dags

Vona að ég harki þetta af mér í nótt!

Nenni ekki að vera veikur


Staðfesting

Gaman að heyra hvað Billy hefur að segja um lífið Athyglisvert að við tónum frekar vel saman Á ýmsum sviðum Í þessu viðtali http://vimeo.com/44390873 þá kemur fram að uppáhaldslagið mitt af nýju plötunni er nokkuð áhugavert Howard Stern velur þetta lag...

mæli með þessu viðtali

http://vimeo.com/44390873

Næsta gigg

Casio Fatso heldur næsta gigg þann 4.júlí á Þýska Barnum Fyrst á svið eru eftirfarandi: Ásgeir Trausti https://www.facebook.com/asgeirtrausti Tinna Rós https://www.facebook.com/rostinna John Singh McAnger https://www.facebook.com/john.mcanger Þau taka...

Duff ,,The king of Beers" McKagan

Er að lesa ævisögu Duff Mckagan bassaleikara Guns N Roses, Velvet Revolver, Ten minute Warning og Loaded. Held eiginlega bara að hann sé minn uppáhalds gaur úr GNR Elska að lesa um þessa gaura. Búinn með Slash, Steven Adler og tvær bækur um Axl. Á bara...

english muff

Mikið finnst mér enska landsliðið vera hálf slappt eitthvað Gone are the days of Beckham og félagar Núna er þetta bara lame ass Paker, Milner og félagar Jú, að vísu er Gerrard, Johnson og Carroll þarna en men...það er ekki eins og þeir hafi átt neitt...

in seattle

ó men....af hverju geta börn ekki bara sofið á nóttinni!!!!!!!!!!!!

umferð

Komst að því að það tekur bara 20 mín að keyra til Keflavíkur. Það er, að keyra sjálfa Reykjanesbrautina. En svo tók aðrar 10 mín að keyra frá Sprengisandi á R.brautina....What gives! Djöfull taka þessar beygjur og ljós hérna í bænum langan tíma Ég ætla...

and so it begins

Sebastian tók þátt í sínu fyrsta fótboltamóti í dag Breiðablik á móti Keflavík Hann er búinn að vera spenntur fyrir þessu í nokkra daga Það var yfirlýst markmið að sóla gaura og skora mörg mörk Sem hann og gerði! Stóð sig eins og hetja. Átti m.a. mark...

Vil óska Sir Paul til hamingju með afmælið

Uppáhalds dæmið mitt með honum(samið af honum)

rip off

jæja......hver er alltaf að stela hugmyndunum mínum? Það var fyrir einhverjum tíma sem ég kom með færslu um þetta nkl sama nema bara í gegnum youtube. Byrja á einhverju vídjói og þurfa að klikka sig áfram þangað til maður endar á fyrirfram ákveðnu...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 153137

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband